Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Page 19

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Page 19
rannsakað, hversu mikið kveður að þvílíkum samnings- ákvæðum hcr á landi. Líklega eru þau fremur fátíð, enda eru taldar líkur fvrir því, að um handveð sé að ræða, ef verðmæti eru fengin kröfuhafa í liendur „til trygg- ingar“ kröfu hans, og eigi kveðið nánar á um það.x) Handveð er betri trvgging fvrir kröfuhafa, þar eð það veitir honum rétt til að leita fullnustu í veðinu, en skil- yrðin fyrir stofnun samningshundins haldsréttar og hand- veðs eru á hinn bóginn þau sömu. Samkvæmt þvi verða ákvæði löggernings um haldsrétt almennt að vera skýr og ótviræð. Um efni haldsréttarins og lögvernd haldsréttarhafa myndu hér gilda sömu reglur, eins og þegar um hinn svokallaða lögákveðna haldsrétt er að ræða, enda sé eigi á annan veg mælt fyrir í löggerningi þeim, er kveður á um haldsréttinn. Það er skilyrði samningsbundins haldsréttar, að halds- réttarhafinn hafi eða fái við löggerninginn vörzlur þeirra verðmæta, sem honum er veittur haldsréttur í. Það er þó eigi svo að skilja, að nauðsynlegt sé, að halds- maður hafi sjálfur persónulega vörzlur eignarinnar, held- ur nægir, að annar maður fari með umráð hennar í um- boði haldsréttarhafa. Þó dygði það ekki til stofnunar haldsréttar, að eigandi sjálfur tæki að sér varðveizlu haldbundinnar eignar í umboði haldsréttarhafa. Koma hér yfirleitt svipaðar reglur til greina, að því er vörzl- urnar varðar, eins og þegar um handveð er að ræða. B. Viðurkennt er, að haldsréttur geti átt sér stað, án þess að hann sé sérstaldega heimilaður i löggerningi. Er þá talað um lögákveðinn haldsrétt. Lagaákvæði, er beinlínis heimili haldsrétt, eru að vísu fremur fátíð. Helzt er slík fyrirmæli að finna um afnota- eða þjónustugjöld opinberra fyrirtækja, þó að nú orðið séu þar revndar oftast nær heimiluð önnur úrræði, svo sem lögveðsrétt- 1) Sbr. Ólafur Lárusson, Veðréttur, bls. 55. Tímarit lögfræðinga 17

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.