Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Blaðsíða 26
ingar útlögðum kostnaði og málflutningslaunum. Frá
þeirri meginreglu, að hald verði lagt á skjöl, verður þó
sennilega að víkja, þegar um sum lieimildarskilríki er
nð ræða, svo sem vegabréf, atvinnurekstrarleyfi, skip-
unarbréf o. s. frv., enda myndu skilyrði lögákveðins
lialdsréttar tæplega koma þar til greina. Þegar um er
að ræða skjöl, sem eru þýðingarmikil sönnunargögn,
yrði haldsréttarhafinn sennilega að sætta sig við, að þau
vrðu lögð fram fvrir dómi eða stjórnvöldum. En þó að
lialdshafi yrði af þeim sökum að láta skjal af hendi til
bráðabirgða, héldi hann eftir sem áður haldsréttinum
gagnvart eiganda. Öheimilt myndi að leggja hald á hand-
ril höfundar, shr. grundvallarregluna í 12. gr. rithöf-
undarl. nr. 13/1905. Kröfuréttindi geta ekki verið andlag
haldsréttar, nema um þau hafi verið gert hréf.
V. I haldsrétti felst heimild til að hafa hlut í haldi,
þangað til tiltekin greiðsla er innt af hendi. Haldsréttur
nýtur almennt fullrar lögverndar, bæði gagnvart eig-
anda sjálfum, lánardrottnum hans og síðari viðsemjend-
um, án þess að nokkrar sárstakar tryggingarráðstafanir
]>urfi að gera. Þegar um fasteignir væri að ræða, yrði
þó að krefjast þinglýsingar. Eldri óbein eignarréttindi
lialda hins vegar almennt gildi og ganga fyrir haldsrétt-
inum. Þegar um er að ræða neyðartilvik þau, sem um
var rætt að framan í III B 2 og varðveizla eða björgun
eignar er haldsréttarhafa að þakka, verður þó haldsrétt-
urinn að ganga fyrir eldri óbeinum eignarréttindum yfir
þeirri eign, t. d. veðrétti, og gildir það jafnvel um eldri
sjóveðréttindi. Ef um slíka nej’ðaraðstöðu er að ræða,
ætti það ekki að skipta máli að þessu leyti til, hvort
haldsréttarhafinn hefur skorizt í leikinn af sjálfsdáðum
<eða eftir beiðni eiganda eða umboðsmanns hans. Réttar-
staða haldsréttarhafa ætti ekki að verða lakari fyrir þá
sök, að hann hefur hafizt handa samkvæmt tilmælum
réttra aðila, og ætti því haldsréttur hans einnig í því
iilviki ,að ganga fyrir eldri óbeinum eignarréttindum,
24
Tímarit lögfræðinga