Tímarit lögfræðinga - 01.01.1970, Blaðsíða 32
Þessi atburður, sem hér á sér stað nú í dag, hlýtur að
vekja fögnuð í hjörtum allra Islendinga. Hann er einn af
áþreifanlegu vottunimi um að vér höfurn aftur fengið
fullveldi um öll vor mál.
I þeirri skipan, sem framkvæmd er hafin á í dag, meo
þessu fyrsta móti Hæstaréttar Islands, felast, eins og kunn-
ugt er, meðal annars tvö mikilsverð nýmæh.
Hér eftir verður íslenzkum málum ekki skotið til neins
æðri réttar en þessa virðulega réttar. Hér á þessurn stað
verða framvegis kveðnir upp þeir dómar, sem verða fulln-
aðárúrslit allrar þrætu manna á milli, hér á landi.
Munnleg málfærsla, sem ekki hefur verið notuð nema
að örlitlu leyti fyrir nokkrum rétti hér á landi áður, skal
nú fara fram hér á eftir fyrir þessum virðulega rétti.
Þessi nýmæli varða hina háu dómendur og okkur mála-
flutningsmennina að ýmsu leyti frekar en aðra.
Ég er þeirrar skoðunar, að talsvert velti á því, um það,
hvcrnig framkvæmdirnar takist í þessum efnum, að þeg-
ar frá byrjun megi takast góð samvinna milli hinna háu
dómenda og málaflutningsmanna. Ég leyfi mér fyrir hönd
málaflutningsmannanna, að bera fram þá ósk, að svo
megi verða. Ég hygg óhætt að fullyrða, að vér höfum allii'
reynt að gera okkur ljóst hve mjög aukin ábyrgð legst á
okkur við breytingu þá, sem nú verður.
Vissan um það, að málum þeim, sem við flytjum hér
fyrir réttinum, verður eigi framar skotið til prófunar fyr-
ir neinum æðri rétti, hlýtur að hvetja okkur til þess að
heita öllu meiri alúð við starf okkar og sýna meiri vand-
virkni í því en áður. Að vísu geri ég ráð fyrir því að við
höfum allir eftir mætti reynt að sýna alúð og vandvirkni
í störfum okkar við landsyfirdóminn, svo sem skylda okk-
ar bauð. En meðvitundin um það, að enn sé tækifæri til aö
prófa málið fyrir öðrum rétti, ef til vill með málaundir-
húningi hæfari manna, getur að sjálfsögðu hafa dregiö
nokkuð úr því, að málaflutningsmenn legðu sig svo í fram-
króka sem ella. Hér eftir er ekki rúm fyrir noklcra slíka
30
Timarit lögfræðinga