Tímarit lögfræðinga - 01.01.1970, Blaðsíða 77
svo mikil, að draga yrði úr gjöldum, jafnvel þótt réttar-
öryggi kynni að biða einhvern hnekki. Sparnaðarviðleitnin
beindist einkum að því að fækka dómendum úr 5 i 3 og
leggja dómritarastarfið niður.
Á Alþingi 1924 bar dómsmálaráðherra (Jón Magnús-
son) fram frumvarp til laga um breytingar á hæstaréttar-
lögunum. Friunvarpið bar hann fram sem þingmaður,
enda var forsætisráðlierrann (Sig. Eggerz) því andvígur.
Breytingarnar voru flestar mjög til þess fallnar að veikja
dóminn. Lagt var til, að dómendum yrði fækkað úr 5 í 3.
Rýmkað var um dómaraskilyrði á þá leið, að allir héraðs-
dómarar, er verið höfðu í embætti í 3 ár voru nú taldir
hæfir, en áður einungis dómarar í kaupstöðum landsins.
Áðm- var boðið, að eigi mætti setja dóm með færri dóm-
endum en 5, en nú nægðu 3. Þó var ákvæði um, að lögin
kæniu eigi til framkvæmda fyrr en fast dómaraembætti
losnaði næst í dóminum. Hefði því mátt ætla, að á meðan
svo var, yrði varadómari kvaddur til, því að er hér var
komið hafði einn hinna föstu dómenda (Halldór Daníels-
son) andazt og voru dómendur þá 4. Sú leið var þó ekki
farin, er frumvarpið vaíð að lögum, heldur var það heim-
ildarákvæði, að 3 dómarar nægðu til þess að dómur væri
fullskipaður, framkvæmt á þann veg, að einn hinna föstu
dómenda „sat hjá“ í hverju máli. Enn var sú breyting
gerð, að í stað „dómstjóra“, er konungur skipaði áður,
kom „forseti“, er dómurinn kaus sjálfur til eins árs i senn
hið skemmsta. Bráðabirgðaákvæði eldri laganna um rýmri
heimild til skriflegs málflutnings, en lögin gerðu almennt
i’áð fyrir, var fellt niður, en hins vegar var almenna heim-
ildin til skríflegs málflutnings heldur rýmkuð. Þá voru
önnur bráðabirgðaákvæði felld niður. Sjálfri málsmeð-
ferðinni var hins vegar ekki breytt að ráði að öðru en
því, að nú gat dómari, sem gert hafði ágreining, krafizt
þess, að ágreiningsatkvæði hans yrði birt ásamt dómi í
máli. Samkv. eldri lögunum var hæstaréttarritari skipað-
Ur af konungi og 1. einkunn skilyrði til starfans, enda var
Tímarit löqfræöinga
75