Tímarit lögfræðinga - 01.01.1971, Blaðsíða 13
meiri nieð hverju ári sem leið og i harðri samkeppni við
Islandsbanka, sem fengið hafði i hendur seðlaútgáfu lands-
ins.
Urðu liarðar deilur milli Heimastjórnarmanna og
Sjálfstæðismanna um skýrsluna og þetta mál allt, sem
raunar var hrapað að af hálfu ráðherra. Hafði hann ekki
farið að lögum í öllum atriðum aðgerða sinna, eins og
t. d., er hann vék gæzlustjórum bankans frá og setti aðra
í þeirra stað, og að sjálfsögðu sína flokksmenn. Karl Ein-
arsson hafði frá unga aldri fvlgt Sjálfstæðisflokknum að
málum.
Eins og áður getur, var Karl skipaður sýslumaður i
Vestmannaeyjum frá 1. ágúst 1909. Sakir starfa sinna í
Landsbankanefndinni gat hann ekki tekið við embættinu
fvrr en í byrjun febrúarmánaðar 1910. Þangað til gegndi
því Björn Þórðarson frá Móum á Kjalarnesi, síðar lög-
maður í Reykjavík og forsætisráðherra. Gat hann sér
bezta orð 1 Eyjum f\TÍr skyldurækni og dugnað.
Vestmannaeyjar höfðu verið hið mesta Heimastjórnar-
bæli og var Jón Magnússon, sem verið hafði vinsæll og
ágætur sýslumaður í Vestmannaeyjum um skeið, alþingis-
maður Vestmannaevinga um þessar mundir. Hann var
Heimastjórnarmaður og hafði verið landritari, en var
nú bæjarfógeti i Reykjavík. Höfuðstuðningsmenn hans i
Eyjum voru Sigurður Sigurfinnsson hreppstjóri, alkunnur
maður fvrir gáfur og dugnað, og Gísli J. Johnsen, verzl-
unarstjóri við Edinhorgarverzlun i Evjum.
Karl bvrjaði fljótlega afskipti af stjórnmálum í Evjum
og hugði til framboðs til alþingis. Var hann fyrst í kjöri
árið 1911 og bauð sig fram gegn Jóni Magnússvni við
kosningarnar 28. október 1911. Urslit þeirra kosninga
urðu þau, að Jón sigraði, eins og vænta nvátti, jafn rót-
gróinn og hann var þar. Blaut liann 99 atkvæði, en Karl
72, og sýnir það, að hann hefur þegar verið búinn að afla
sér mikilla vinsælda. Aðalstuðningsmenn hans voru Gunn-
ar Ölafsson og Jóhann Þ. Jósefsson, kaupmenn á Tang-
Tímarit lögfræðinga
7