Tímarit lögfræðinga - 01.01.1971, Blaðsíða 86
ákveðin mótmæli gegn skoðunargerð þessari, enda virðisl
hún liafa farið fram með samþykki umboðsmanns stefnda
eða manna á hans vegum.
I öðru lagi reisti stefnandi riftunarkröfu sína á því, að
hann hefði verið blekktur við kaupin í sambandi við
áhvílandi lán á bátnum, þar sem tekið hefði verið fram
að ekkert af lánum þeim, sem á bátnum hvíldu, væru í
vanskilum. Hafi komið i ljós, að lán hjá Fiskveiðisjóði
Islands bafi verið í vanskilum. Hafi afborgun af láni þessu
fallið i gjalddaga 1. nóvember 1962 og því verið í van-
skilum, þegar báturinn bafi verið seldur. Taldi stefnandi,.
að hann hefði með engu móti haft ástæðu til að ætla, að
lán þau, sem á bátnum hvíldu, væru í vanskilum. í>á taldi
stefnandi enn fremur, að af hálfu stefndu hefði verið beitt
bleldvingum til að fá gefið út haffærisskirteini, þar sem
stefndi hafi lofað eftirlitsmönnum að.útvega varahluti til
bátsins, en síðan eldvi staðið við það loforð. Þá benti stefn-
andi á ’það kröfuni sinum til stuðnings, að afhending
hátsins liafi dregizt til 12. marz, en ekki byggði liann þó
riftunarkröfu sína á því eingöngu.
Stefndi reisti sýknukröfur sínar á þvi, að báturinn hafi
við afhendingu verið í samningshæfu ástandi, enda hafi
verið gefið út haffærisskirteini honum til handa. Þar sem
um gamlan bát hafi verið að ræða, hafi aftur á móti fljót-
lega þui-ft að framkvæma viðgei’ð til viðhalds á honum,
en á þvi beri stefndi ekki ábyrgð. Stefndi viðurkenndi að
hafa vanefnt loforð sitt urn útvegun varaliluta til bátsins,
en taldi þó, að þar væri um mjög óverulega vanefnd
að ræða, enda liafi hún alls ekki komið að sök. Var
i þvi samhandi haldið fram, að ráðstafanir hefðu verið
gerðar til að afla varahluta úr gömlum bát, en stefnda
hefði verið með öllu óskylt að leggja til nýja hluti. Af
hálfu stefnda var því neitað, að um nokkurn afhend-
ingardrátt hefði verið að ræða, enda hafi afhending-
artimi aðeins verið áætlaður í afsali og auk þess liefðu
tafir á afhendingu stafað af viðgerðum, sem stefndi hefði
80
Tímarit lögfræðinga