Tímarit lögfræðinga - 01.11.1973, Page 37
á slíkan frest. Samninganefnd BHM skrifaði síðan fjármálaráðherra bréf,
þar sem fallist var á, að veittur yrði frestur til 18. nóvember, enda væri sá
frestur fuilkomlega nægilegur, ef samningsvilji væri fyrir hendi. Skömmu
síðar voru samþykkt á Alþingi lög um breytingu á kjarasamningalögunum,
þess efnis, að kjaradómsmeðferð skyldi frestað til 15. desember 1973 og
skyldi Kjaradómur hafa lokið dómsorði á ágreiningsefnið eigi síðar en 15.
febrúar 1974.
Næsti fundur samninganefnda BHM og ríkisins var haldinn 31. október s.l.
Kom þar ekkert nýtt fram af hálfu samninganefndar ríkisins. Þegar þetta er
skrifað, 21. nóv., hefur nýr samningafundur ekki verið boðaður.
Kröfugerð BHM í heild fylgir hér á eftir.
Guðríður Þorsteinsdóttir
Kröfugerð og megintillögur um aðalkjarasamning milli Bandalags háskóla-
manna og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs fyrir tímabilið 1.1. 1974 til 31.12.
1975.
I. Fjöldi launaflokka.
Launaflokkar félagsmanna BHM verði a. m. k. 14 og auðkennist A1 til A14.
II. Meginreglur til viðmiðunar um skipan í launaflokka.
BHM telur, að starfsmatskerfi eigi að vera grundvöllur fyrir niðurröðun í
launaflokka. BHM fellst á, að starfsmatskerfi BSRB og ríkisins, sem birtist
í „Drögum II að starfsmatskerfi", maí 1970, verði að þessu sinni í aðalatriðum
lagt til grundvallar við ákvörðun á stigagjöf, enda sé gert ráð fyrir breytingum
á starfsheitum og lagfæringum á stigagjöf. Starfsþjálfunarþrep verði felld
niður, og starfsþjálfunarstig verði miðuð við við full afköst. Viðurkennd við-
bótarmenntun, sem nýtist í starfi, verði metin til stiga.
III.
Föst mánaðarlaun starfsmanns, sem gegnir fullu starfi, verði sem hér segir
miðað við kaupgreiðsluvísitölu = 100, sbr. VIII. gr.:
Stigagjöf Launaflokkur Byrjunai
476—500 A1 66.270
501—525 A2 69.768
526—550 A3 73.437
551—575 A4 77.309
576—600 A5 81.385
601—625 A6 85.699
626—650 A7 90.216
651—675 A8 94.972
676—700 A9 99.965
701—725 A10 105.230
726—750 A11 110.800
751—775 A12 116.643
776—800 A13 122.791
801—825 A14 129.278
35