Ægir - 01.04.1994, Síða 29
Verðið á skelflettri rækju hefur lækkað verulega
síðustu árin eins og sjá má á þessu súluriti, en
á því er verðið í janúar 1986 sett á 100. í byrjun
þessa árs var það komið undir 60.
1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993
Rækjuafli við ísland á árunum 1967-1993. Eins og
sjá má kom verulegur kippur í veiðarnar eftir að
kvótinn var settur á árið 1983.
Austfirði og Vestfirði. Ég hafði áður reynt fyrir mér á
Dohrnbankanum, en ekki fundið neitt, sennilega ekki
verið þar á réttum tíma. Rækjan flakkar líka til þarna,
hún er til dæmis vestar í ár en hún var í fyrra."
Aukin sókn er áhyggjuefni
Nú er Snorri kominn aftur í rækjuna og búinn að fá sér
nýtt skip. Hann festi kaup á grænlenskum rækjutogara í
fyrrahaust og lét setja í hann nýja vinnslulínu. Baldur EA
108 er tæplega 500 tonna skip og Snorri lætur vel af því.
„Þetta er prýðisskip sem ég fékk á skaplegu verði. Ég
hef þurft að láta gera margt hér um borð, en þegar því
verður lokið vonast ég til að þetta verði gott skip og ekk-
ert svakalega dýrt. Vissulega er skipið orðið 15 ára gamalt
og það er munur á því og nýsmíðuðum skipum, en það
má nota fleira en nýjustu skipin. Skipið er vel viðunandi
og aðbúnaður góður, hér er allt nema líkamsræktarstöð."
Það hefur margt breyst á þeim tíma sem Snorri sinnti
öbrum veiðiskap. „Þegar kvótakerfið kom jókst hreyfing-
in í þessa veru, kvótaskerðingin á þorskinum ýtti mönn-
um út í rækjuveiðar. Nú er þetta orðið fullmikið og virð-
ist ætla að aukast enn meira ef marka má fyrirætlanir út-
Unnur
Skúladóttir,
fiskifræðingur
á Hafró, helsti
sérfræöingur
okkar íslendinga
í rækju:
„Þorskurinn er
óvinur rækjunnar
númer eitt.“
gerbarmanna. Það er áhyggjuefni því það er ekki víst að
allir geti bjargað sér á rækjunni."
Er þá ekki nóg af henni í sjónum?
„Það virðist vera mikið af henni núna um allan sjó
enda er alls staðar lítið um fisk. Hér fyrir norðan hefur
hún gengib á slóðina eftir að grálúðan hvarf og þorskurinn
minnkaði. Þetta lifir hvort á annars kostnað."
Þorskurinn óvinur númer 1
Þessi orð leiða hugann að því hvort rækjustofninn sé að
komast í hættu vegna ofveiði. Rækjuveiðar hafa verið bundn-
FISKIKER
Styrkur, ending og notagildi einkenna fiskikerin fró Borgarplasti h.f.
VORU-
BRETTI
LINU-
BALAR
b E
C'-
pfi
o<o
O 3
- D
Fímm geröi'r af vöiubretlum, Þau eru ekki § :§
fyllt með Fblyurethane. Timburbretti eru -
bönnuð í matvœlaiðnaði í EDA og EB. ° «
hi
Sefgörðum3,170,Selljamamesi. Sími91-612211. Fax91/^14185
ÍSTIS0 9001
ÆGIR APRÍL 1994 29