Ægir - 01.04.1994, Blaðsíða 40
algengasti flatfiskurinn við landið.
Óvíða er mjög mikið um hana en ætíð
er af henni reitingur, hvort heldur er á
dýpstu slóð eða grynnstu. Einna mest
er þó af henni á grunnslóð norðan- og
norðaustanlands og minnst út af
Breiðafirði og Faxaflóa (24. mynd).
24. mynd. Útbreiösla skrápflúru í mars
1985-93 (fjöldi fiska á togmílu).
Keila
Af meðfylgjandi útbreiðslumynd
(25. mynd) sést að keilu verður vart
víðast hvar kringum landið, bæði
djúpt og grunnt. Magnið er þó yfirleitt
mjög lítið. Tiltölulega mest virðist þó
vera af henni austan- og vestanlands
en minna norðan- og sunnanlands.
Það sem finnst af keilu N- og NA-lands
mun og að mestu vera smá ókyn-
þroska keila sem lítt kemur í venjuleg
veiðarfæri. Aðalútbreiðsla stórrar keilu
og þar með veiðanlegs fisks mun hins
vegar vera í hlýja sjónum við suður-
ströndina.
25. mynd. Útbreiðsla keilu í mars
1985-93 (fjöldi fiska á togmílu).
Lúða
Lúðuafli í stofnmælingu botnfiska
er í raun sáralítill. Þó verður vart við
lúðu víðast hvar umhverfis landið, en
lítið á djúpslóð norðanlands og aust-
an. Mest er um lúðuna á Vestfjarða-
26. mynd. Útbreiðsla lúðu í mars
1985-93 (fjöldi fiska á togmílu).
miðum, úti fyrir Breiðafirði og í Faxa-
flóa (26. mynd).
Kælimiðlar
R-134a
R-22
R-502
R-12
KÆLITVEKIIIi
Skógarhlíð 6
101 Reykjavík
Sími 91-614580
Fax 91-614582
Langa
Þótt fræðibækur segi að löngu sé að
finna allt i kringum landið virðist það
varla standast skv. 27. mynd. Þar má
sjá að norðanlands og austan veiðist
hún varla og frá Grímsey að Hvalbak
er auður sjór að sjá hvað lönguna varð-
ar öll 9 ár stofnmælingarinnar. Langa
fæst annars í hlýja sjónum frá SA-
landi, vestur um og norður fyrir Vest-
firði. Hún er lítt á grynnstu slóðinni
en mest út í köntum sunnanlands og á
Víkurálssvæðinu.
27. mynd. Útbreiðsla löngu í mars
1985-93 (fjöldi fiska á togmílu).
Blálanga
Blálöngu er nær eingöngu að finna í
djúpköntum SV-lands og þar er hún á
tiltölulega afmörkuðum blettum. Vott-
ur er og af henni á djúpu vatni SA-
lands og í Rósagarðinum (28. mynd).
Hún fæst hins vegar aðeins örsjaldan
fyrir norðan og austan land.
28. mynd. Útbreiðsla blálöngu í mars
1985-93 (fjöldl fiska á togmílu).
Þakkir
Höfundar þakka þeim fjölmörgu
starfsmönnum Hafrannsóknastofnun-
arinnar, skipverjum rannsóknatogara
og útgerðarmönnum sem lagt hafa sitt
af mörkum til þessa verkefnis á liðnum
árum. □
40 ÆGIR APRÍL 1994