Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.05.1994, Qupperneq 8

Ægir - 01.05.1994, Qupperneq 8
hátt. Þetta er fjárfesting sem búið er að afskrifa." Þá minntist enginn á offjárfestingu „Fyrstu frystitogararnir komust í gagniðl982. Þegar fjölmiðlamenn voru að reikna út verðmætið sem kom inn í þjóðarbúið af Smugu- og út- hafskarfaveiðum varð það niðurstaða þeirra að sá afli lyfti efnahag þjóðar- innar en það var einmitt öflugur og vandaður fioti sem gerði þetta kleift. Þá minntist enginn á offjárfestingu. Eðlilegur iíftími skips sem fær eðli- legt viðhald gæti verið 25 ár. Eftir þann tíma er viðhaldið orðið gífurlegt og þá má búast við að framþróun hafi orðið í tækni sem gerir endurnýjun sjálfsagða. Fyrsta skipið sem ég hafði eftirlit með smíði á kom til landsins 1972. Þetta var Júlíus Geirmundsson sem nú liggur hjá skipasmíðastöðinni í Noregi gjörsamlega útslitinn. Það er mjög erfitt að finna kaupanda að svona skipum. Menn sjá ofsjónum yfir þeim verð- mætum sem liggja í fiskiskipaflotan- um. Þetta er undirstaða 80% gjaldeyr- isteknanna," segir Bárður. „Staðreyndin er sú að meðalaldur ís- lenska flotans er að nálgast 25 ár. Að mínu mati er endurnýjunarþörfin brýnust í loðnuflotanum. Það eru ekki nema 12-13 nótaskip í flotanum sem standa undir nafni. Hitt eru mis- gamlir kláfar sem búið er marg- breyta, stækka og lengja. Þaö eru að verða miklar framfarir og auknar kröfur í mjölvinnslunni sem kalia á að skipin komi með betra hráefni aö landi til þess að verksmiðjurnar geti framleitt há- gæðamjöl og skapað þannig stóraukin verðmæti. Þessu þurf- um við að hyggja að í tíma. Okkur vantar stór og öflug nótaskip með sjókælitönkum sem geta sinnt þessu og veitt norsk-íslensku síldina sem á eftir að koma aftur innan fárra ára. Það er lykillinn að því að geta nýtt stærsta hluta hennar til manneldis." Á árunum milli 1974 og 1980 höfðu stjórnvöld meiri afskipti af skipasmíð- um en nú tíðkast. Þá komu menn gjarna beint ofan úr ráðuneyti með skuttogaraleyfið nýstimplað í vasan- um. Nú er horft meira til þess hve vel „ Við eigum ekki eftir að smíða stóra frystitogara hér á íslandi á nœstu árunt. Ég tel að við eigum að einbeita okkur að minni skipum, tiámark 40 metra löngum, skipum sem við getum byggt á 8-10 mánuðum." sú útgerð stendur á eigin fótum sem vill eignast skip og pólitísk fyrir- greiðsla vegur ekki eins þungt og áður. „Þessi vinnubrögð heyra sögunni til og bíða sagnfræðinga framtíðarinnar," segir Bárður. Eigum ekki eftir að smíða stóra togara á íslandi En heyra skipasmíðar á íslandi sög- unni til. Er niðurlæging greinarinnar orðin slík að ekki verði snúið til baka? „Við eigum ekki eftir aö smíða stóra frystitogara hér á íslandi á næstu árum. Ég tel að við eigum að einbeita okkur að minni skipum, hámark 40 metra löngum, skipum sem við getum byggt á 8-10 mánuðum. Eina til tvær stöðvar þarf til að sinna þessu. Það er orðin mikil sérhæfing í þessari grein og mikl- ar kröfur um framleiðni og stöðug verkefni og slíkt næst ekki nema stöðv- arnar séu á alþjóðlegum markaði." Nú hefur íslendingum ekki gengið sérlega vel að keppa við erlendar skipa- smíðastöðvar. Hver er ástæðan? „Fyrirtækin hafa lifað við mjög óstöðugt umhverfi gegnum tíðina. Það er staðreynd að víða erlendis tíðkast styrkir og niðurgreiðslur í ýmsum myndum í þessari grein. Afturhaldssjónarmið Mér finnst að ríkisvaldiö eigi ekki að skipta sér of mikið af þessum at- vinnuvegi. Ríkisvaldið á að skapa stöðugleika og hagstætt umhverfi en beinir styrkir eru ekki æskilegir. Þá sofna menn á verðinum. Við verðum að komast meira í verkefni fyrir út- lendinga og afnema gamaldags reglur um það hvaða skip megi þjónusta hér og hver ekki. Þetta eru afturhalds- sjónarmið að mínu viti. Það eru örfá ár síðan grænlenskir rækjutogarar fóru að koma hingað en það varð lyfti- stöng fyrir marga. Nýlegt dæmi um breskan togara, sem keypti hér vara- hluti og kaupin urðu að lögreglumáli, sýnir glöggt hve reglurnar eru úreltar. Við erum hérna í miðju Atlantshafinu og eigum að grípa þau tækifæri sem gefast. Hitt er svo annað mál að ís- lenskar skipasmíðastöðvar þurfa að líta í eigin barm og hyggja að sínum vinnubrögðum. Ég hef oft séð það gerast að skip kom í slipp á ákveðnum tíma og þurfti að bíða sólarhringum saman án þess að nokkur sinnti því. Þetta er auðvitað algjörlega ófært. ís- lenskar skipasmíðastöðvar þyrftu að hafa rýmri verka- lýðslöggjöf til þess að geta mætt auknu álagi með vaktavinnu. ís- lendingar þurfa að temja sér meiri þjónustulund." DROFN VIÐHALD SKIPA & FASTEIGNA 8 ÆGIR MAÍ 1994

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.