Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1994, Blaðsíða 34

Ægir - 01.05.1994, Blaðsíða 34
Útflutningur sjávarafurða Þrátt fyrir minni bolfiskafla á síðasta ári en árin á und- an var útflutningur sjávarafurða meiri en verið hefur á þessum áratug enda loðnuveiði með ágætum. Verðmæti afurðanna var einnig hærra í krónum talið, en það var hins vegar lægra sé miðað við Bandaríkjadollar eða SDR. Er þetta svipuð þróun og milli áranna 1992 og 1991. Heildarmagn útflutningsins var 635.368 lestir árið 1993 en var 569.979 lestir árið 1992. Aukningin nemur því 11,5% milli ára. Verðmæti afurðanna var 76,1 milljarður króna árið 1993 en var 71,3 milljarðar króna árið 1992 og hefur þannig aukist um 6,7% á milli ára. Útflutningurinn jókst ab magni um 20,8% milli áranna 1991 og 1992 en virðið drógst þó saman um 5,4%. Árið 1991 var útflutn- ingurinn 471.646 lestir og var þá að magni til sá minnsti síðan 1983. Verðmæti hans náði þó sögulegu hámarki. Hiutdeild sjávarafurða í heildarútflutningi landsmanna hefur verib nokkuð stöðug á undanförnum árum. Hún var 78,7% árið 1993, en 79,6% árið á undan. Árib 1991 var hlutdeildin 80,0%. Magn Árin 1985-1990 var útflutningur sjávarafurða í há- marki að því er magn varðar. Þessi ár veiddist mikil loðna og útflutningur ísfisks var í hámarki. Meðalútflutningur á ári þessi ár var um 680 þúsund lestir en hámarki nábi út- flutningurinn árið 1986 og nam hann þá tæpum 719 þúsund lestum. Ástæba þessa mikla útflutnings umrætt ár er óvenju mikill loðnuafli sem fram kom í mikilli sölu á lýsi og mjöli, ásamt fleiri löndunum loðnuskipa erlendis. Þá var botnfiskaflinn í góðu meðailagi ásamt því að sala sjávarafurða var meiri en framleibsla ársins og gekk því nokkuö á birgðir. Þrátt fyrir ágætan loðnuafla ársins 1992 olli minni útflutningur ísfisks því að heildarútflutningur sjávarafurða var töluvert minni en meðalútflutningurinn á seinni hluta níunda áratugarins. Árið 1993 nam útflutn- ingurinn rúmum 635 þúsundum lesta og munar þar mestu um ágætan loönuafla á árinu, enda vega lýsi og mjöl þungt í magni útflutningsins. Verðmæti Virði útflutnings eftir afurbaflokkum er sýnt í töflu. Þar sést framlag verkunargreinanna til útflutningsverð- mætisins og eru samtölur verðmætis sýndar bæði í krón- um og dollurum. Eins og sést af töflunni hefur útflutn- ingsverðmætib verið meira en einn milljarður dollara allt frá árinu 1987. Árið 1993 lækkar þab í fyrsta skipti milli ára síðan 1989 en það var 1.123 milljónir árið 1993. Lækkunin milli áranna 1993 og 1992, sé miðað við doll- ara, er 10,4%. Vísitölur útflutningsverðmætis H Dollarar ^SDR Heimild: Hagstofa íslands Útfiutningur sjávarafurða virði í millj. SDR Heimild: Hagstofa íslands □ Aðrar afurðir □ Lagmeti □ Mjöl og lýsi □ Hertar afurðir □ ísaðar afurðir □ Salt. afurðir □ Fryst. afurðir Útflutningur sjávarafurða hlutfallsleg skipting 75% - 50% - — — ■_ ' 25% 0% 1981 1984 1987 1990 1993 □ Fryst.afurðir □ Salt. afurðir □ ísaðar afurðir □ Hertar afurðir □ Mjöl og lýsi □ Lagmeti □ Aörar afurðir Heimild: Hagstofa íslands Magn og virði útflutnings 1400 1200 1000 800 600 400 200 0 1981 1983 1985 1987 1989 1991 1993 I Magn í þús.tonna ^ Virði í millj.SDR 52 Virði í millj.S Heimild: Hagstofa íslands 34 ÆGIR MAÍ 1994

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.