Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1994, Blaðsíða 9

Ægir - 01.05.1994, Blaðsíða 9
íslendingar góðir í skorpum Er íslenskur skipasmíðaiðnaður þá ekki samkeppnisfær við erlendan? „Hugvit um skip og skipasmíðar er á góðu plani en það vantar öguð vinnubrögð hjá iðnaðarmönnum. íslendingar eru afar sjáif- stæðir og frjóir og fer illa að fylgja nákvæm- um fyrirmælum út í hörgul en vilja frekar ákveða sjálfir hvernig best sé að hafa hlut- ina. Við erum frábærir þegar þarf að vinna í skorpum og lyfta grettistökum til að leysa átaksverkefni en okkur vantar stöðugleikann í jafnri framleiðslu. Skýringin er trúlega sú að iðnbyltingin kom seint til íslands og það vantar þær hefðir og verkmenningu sem aðrar þjóðir hafa. Hingab kom tækniöldin ekki fyrr en hún hafði staðið í 100 ár hjá öðrum þjóð- um. Þessi þróun tekur nokkrar kynslóðir." Nú hefur þú fylgst meb skipasmibum meðal nokkurra þjóða og séð mun á vinnu- brögðum. Hvar viltu helst láta smíða skip? „Vinnubrögð á Norðurlöndunum eru mjög góð og í Póllandi er hægt að fá góð skip með því að vanda undirbúninginn. En ég er svo mikill íslendingur í mér að helst vildi ég láta smíða hér innanlands þegar það er hægt." En hvernig eiga þá íslenskar skipasmíða- stöðvar að komast af? „Það þarf að skera harkalega niður allan óþarfakostnab, auka samvinnu milli ýmissa fyrirtækja í greininni, undirbúa og skipu- leggja verkin betur. Við verðum að halda uppi viðhaldi og viðgerðum hér í landinu. Annab gengur ekki. Skipasmiðaiðnaburinn í nágrannalöndum okkar, t.d. í Danmörku, hefur gengib í gegnum mjög erfiða tíma en náð að rétta hlut sinn á ný. Eflaust getum við margt lært af þeim og gæti veriö mjög gagnlegt að fá þá til þess að leiðbeina okkur út úr þessum ógöngum." Að flytja út hugvit Skipatækni hefur ekki látib sér nægja að hanna skip og báta fyrir ísiendinga heldur hefur fyrirtækið þreifað fyrir sér erlendis og er vel þekkt í þessari starfsgrein. Skipatækni hannaði hval- og línuveiðiskip fyrir rúss- neska abila fyrir nokkrum árum en aldrei varð af smíbi þess. Tilraunir til þess að kom- ast inn á markaö á Nýja-Sjálandi, sem staðiö hafa frá árinu 1989, lofa góbu. Stærsta út- gerðarfyrirtæki Nýja-Sjálands, Sealord, hefur BOSCH ÞJÓNUSTA DIESELVERKSTÆÐI VARAHLUTAÞJÓNUSTA ÁRATUGA ÞEKKING OG REYNSLA í STILLINGUM OLÍUKERFA DIESELVÉLA ORMSSON HF LÁGMÚLA 9, SÍMI 38820 ÆGIR MAÍ 1994 9

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.