Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1994, Blaðsíða 42

Ægir - 01.05.1994, Blaðsíða 42
Neðra þilfar: Fremst á neðra þilfari er geymsla, þar fyrir aftan eru íbúðir og síðan vinnuþilfar. Aftan við vinnuþilfar er fiskmóttaka fyrir miðju, verkstæði og vélarreisn b.b.-meg- in og stigagangur s.b.-megin, en aftast er rými fyrir togvind- ur úti í síðum og stýrisvélarrými fyrir miðju. Efra þilfar: Brú skipsins er framan við miðju, og hvílir á um 1.5 m hárri reisn. Vörpurenna kemur í framhaldi af skut- rennu, hún greinist í tvær rennur, sem liggja í gegnum brú- arreisn og ná fram undir stefni og er unnt að hafa tvær vörp- ur undirslegnar og tilbúnar til veiða. Yfir afturbrún skut- rennu er toggálgi, en pokamastur yfir frambrún skutrennu, ofan á vélarreisn b.b.-megin og niðurgangskappa s.b.-megin. B.b.-megin á efra þilfari er klefi fyrir lausfrysti og s.b.-megin klefi fyrir C02-slökkvikerfi. Ofan á brúarþaki eru möstur fyrir loftnet og ljós, og hífingablakkir í afturkanti brúar. Vélabúnaður Framdrifs- og orkuframleiðslukerfi: Aðalvél skipsins er frá Deutz, sex strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eftirkæli. Vélin tengist niðurfærslu- og skiptiskrúfubúnaði frá Finnoy, með innbyggðri kúplingu. Utan um skrúfu er stýrishringur frá Finnoy. Tæknilegar upplýsingar (aðalvél með skrúfubúnaði): Gerðvélar................... SBV 6M628 Afköst...................... 1170 KW viö 1000 sn/mín Gerð niðurfærslugírs........ G50FK Niðurgírun.................. 4.5:1 Gerð skrúfubúnaðar.......... P70.22.250.4D Efni í skrúfu............... NiAl-brons Blaðafjöldi skrúfu.......... 4 Þvermál skrúfu.............. 2500 mm Snúningshraði skrúfu ....... 222 sn/mín Stýrishringur............... D250 Auk skrúfuaflúttaks á gír eru þrjú aflúttök, eitt fyrir öxul- rafal (1:1.516) og tvö útkúplanleg fyrir vökvaþrýstidælur vindna (1:1.678), miðaö við 1000 sn/mín á aðalvél. Rafall er frá Leroy Somer, gerð LSA 475 L10, 224 KW (280 KVA), 3x380 V, 50 Hz. Vökvaþrýstidælurnar eru tvöfaldar Hágg- lunds-Denison, gerð T6ED - 052-035, afköst 435 1/mín hvor við 210 bar þrýsting og 1678 sn/mín. Ein hjálparvél er í skipinu frá MAN af gerð D2866TE, sex strokka fjórgengisvél með forþjöppu, 177 KW við 1500 sn/mín. Vélin knýr 160 KW (200 KVA), 3x380V, 50 Hz rið- straumsrafal frá Stamford af gerð MHC 434C. Stýrisbúnaður: Stýrisvél, rafstýrð og vökvaknúin, er frá Nörlau, gerð 126-19-105-7.3, snúningavægi 7.3 tm, og tengist stýrishring. Að framan er skipið búið vökvaknúinni hliðarskrúfu frá Jastram. Tæknilegar upplýsingar (bógskrúfa): Gerð...................... BU 10F Afl....................... 100 hö Blaðafjöldi/þvermál....... 4/620 mm Niðurgírun................ 1.79:1 Snúningshraði............. 1117sn/mín Vökvamótor................ Volvo F11—110 Afköst mótors............. 73 KW við 2000 sn/mín Vélakerfi dieselvéla: í skipinu eru tvær skilvindur frá Alfa Laval af gerð MAB103B, önnur fyrir brennsluolíu og hin fyrir smurolíu. Ræsiloftþjöppur eru tvær frá Sperre, önnur rafdrif- in af gerð HL 2/77, afköst 25 m3/klst, og hin véldrifin (Lister) af gerð HLF 2/77, afköst 7.5 m3/klst, þrýsingur 30 bar. Fyrir loftræstingu vélarúms og loftnotkun véla er einn rafdrifinn blásari frá Novenco, gerö ACN-630, afköst 15000 m3/klst. Rafkerfi: Rafkerfi skipsins er 380 V riðstraumur fyrir mót- DEUTZ SERVICE wniitir + '. * Ullltttt SNORRI SNORRASON A KHD DEUTZ Óskum útgerð og áhöfn innilega til hamingju með nýja skipið. Aðalvél skipsins er frá DEUTZ MWM. lOKSSI HlStfLt WLSMIÐJA KJW LANGHOLTSVEGI 109 • PÓSTHÓLF 4207 • 124 REYKJAVIK SÍMAR: 91-679325 - 679308 • FAX 91-679318 42 ÆGIR MAÍ 1994

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.