Ægir

Årgang

Ægir - 01.05.1994, Side 10

Ægir - 01.05.1994, Side 10
FYRSTA RAÐSMÍÐAVERKEFNIÐ Fyrstu raðsmíöaskipin á íslandi, „Dísirnar". Þær voru smíðaðar í Skipabraut ísafjarðar 1939, Bárður Tómasson rak hana í áratugi bækistöðvar sínar í Nel- son. Þetta er eitt stærsta útgerðarfyrir- tæki á suðurhveli jarðar sem ræður yfir 130 þúsund tonna bolfisk- kvóta. Fyrirtækið hefur átt fá skip sjálft heldur reitt sig á útgerð leigu- skipa en hyggst í vax- andi mæli eignast skip. Síðastliðið vor vann Skipatækni stórt verk- efni fyrir Seaiord sem fólst í breytingum á grænlenskum togara sem fyrirtækiö keypti og lét breyta í ísfisktog- ara. Árið 1989 tók Skipatækni ásamt tíu öðrum hönnunarfyrir- tækjum þátt í að gera tillögur að hönnun nýs hafrannsóknaskips fyrir Nýsjálendinga og lenti tillaga þeirra í öðru sæti. Segja má að að- eins sé tímaspursmál hvenær farið verður að smíða skip eftir íslenskri hönnun hinum megin á hnettinum? Allur heimurinn eitt markaðstorg „Þetta er hluti af okkar framtíð," segir Bárður. „Hingað á norðurhvel jarðar er leitað eftir tækniþekkingu á þessu sviði og nú er allur heimurinn eitt markaðstorg. Nútímatækni hefur gert að verkum að fjarlægðir skipta ekki máli. Héðan fara teikningar fram og til baka um tölvunet milli Noregs og íslands oft á dag meðan Guðbjörgin er í smíðum ytra. Allt gerist þetta á ör- skotsstund og má einu gilda hvort það er Noregur eða Nýja-Sjáland. Ýmis sérhæfður búnaður sem ís- lensk fyrirtæki hanna og framleiða get- ur orðið útflutningsvara gegnum skipahönnun og Skipatækni, gegnum erlenda aðila, getur rutt brautina á þessu sviði. Við getum bæði lært af því besta erlendis á þessu sviði og miðlað öðrum af þekkingu okkar." Ættir og uppruni En svo vikið sé að persónulegri mál- efnum þá vaknar sú spurning hvers vegna þetta fag, skipaverkfræði, hafi orðið fyrir valinu hjá Bárði Hafsteins- syni. Skýringin er kannski ættfræðilegs eðlis. Móðir Bárðar var alin upp undir handarjaðri Bárðar G. Tómassonar á Isafirði sem var fyrsti skipatæknifræð- ingur á íslandi en hann var náfrændi hennar. Bárður Hafsteinsson ólst upp í návígi við fagiö og fór að vinna í Skipasmíðastöð Marsellíusar Bern- harðssonar á ísafirði þegar hann hafði aldur til. „Ég varð stúdent frá MA 1965, fór síðan í verkfræði í HÍ og þaðan í skipa- verkfræði í Danmörku og lauk þaðan prófi snemma árs 1972." Segja má að síðan hafi Bárbur ekki litiö upp úr skipateikningum og oft fengið að upplifa þá sérstæðu tilfinn- ingu að sjá kampavínsflösku brotna á stefni skips sem hann hefur teiknað og hannað frá grunni. Bárður segir það vera afar ljúfar uppskerustundir og við- urkennir að vinnan sé í rauninni áhugamál líka því á sunnudögum sé sívinsælt að aka niður að höfn og skoða skip. Sú spurning vaknar hvort Bárður Hafsteins- son eigi sér arftaka fyrst skipateikningar séu í blóðinu. Hann viður- kennir að einn þriggja sona hans hafi þegar hafið nám í verkfræði þó of snemmt sé að segja fyrir um til hvers það leiðir. Kynni af fumherjanum Bárður G. Tómasson varð fyrstur íslendinga til þess að afla sér menntunar í skipaverk- fræði. Hann ólst upp á Kollafjarðarnesi í Stein- grímsfirði og varð ung- ur staðráðinn í að verða skipasmibur. Guðmundur Bárðarson móðurbróbir hans á Kollafjarðarnesi var annálaður bátasmibur og mikill hagleiksmaður. Átján ára flutti Bárður til ísafjarðar og vann einn vetur við skipasmíðar þar, einkum viðgerðir. Hann sigldi til náms í tréskipasmíði í Frederikshavn haustið 1904 og lauk sveinsprófi það- an ásamt framhaldsnámi í tækniskóla árib 1908. Hann lauk síðan prófi í skipatæknifræði frá Helsingör 1911. Að námi loknu starfaöi hann sem skipasmiður í Helsingör Skibsværft en hélt síðan áfram námi í Sunderland í Englandi og lauk prófi árib 1914. í Sunderland hannaði Bárður fiskiskip sem skyldi vera úr stáli og tré og má teljast fyrsta raunhæfa hugmyndin ab smíði íslensks stálskips þó smíði þess yrði aldrei að veruleika. Bárður settist að á ísafirði og rak Skipabraut ísafjarðar, sem var dráttar- braut og skipasmíðastöð, í áratugi. Þar voru smíðuð tréskip og stundaðar við- gerðir. Þar voru fyrst raðsmíðuð skip á íslandi þegar fimm systurskip voru 1 0 ÆGIR MAÍ 1994

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.