Ægir - 01.05.1994, Side 12
Merkúr lætur
Kynnir nýjar Yamaha-vélar
„Þaö er sama hverju þarf ab dæla eöa hvar. Við mætum á
staðinn, leysum málið annaðhvort með dælu af okkar vöru-
lista eða klæðskerasaumum sérstaka lausn fyrir hvern við-
skiptavin," segir Jóhann Ólafur Ársælsson sem hefur ára-
tuga reynslu á þessu sviði. Merkúr selur litlar dælur í litla
báta, stórar dælur í stærri skip og verksmiðjur, klóakdælur,
sérhannaðar dælur í mjólkurvinnslu og dælur sem dæla
slógi eða einhverju þykkara
en vatni. Dælur sem ganga
fyrir glussa, rafmagni eða
lofti. Þab er talað um þurr-
ar eða blautar lausnir eftir
því hvort dælan þarf að
vera ofan í vökva eða ekki.
Merkúr er 15 ár gamalt
fyrirtæki sem fyrstu árin
lagði einkum áherslu á
ýmis tæki og tól fyrir verk-
taka og sveitarfélög.
Fyrir fjórum árum gekk
Jóhann Ólafur Ársælsson til
liös við fyrirtækið og síðan
hefur véladeild Merkúrs
stöðugt vaxið fiskur um
hrygg.
Það sem Merkúr er þekk-
ast fyrir meðal sjómanna
eru Yanmar-bátavélar og
Tsurumi-dælur. Bátavélarn-
ar eru frá 9-1100 hestöfl og hafa verið mjög vinsælar í
smærri báta. Þannig nota Trefjar í Hafnarfirði Yanmar-vélar
í alla báta sem þar eru smíðaðir en Merkúr selur reyndar all-
an vélbúnað í bátinn allt frá skrúfuró upp í stýri. Seinni árin
hafa dælurnar notið vaxandi vinsælda og til þess að auka
þjónustuna hefur Merkúr tekið upp samstarf við hollenskt
fyrirtæki, HSP, Holland Special Pumps, og með þess aðstoð
getur Merkúr boðib dælur til allra verkefna alls staðar.
Snuðlokinn er vinsæll
Merkúr hefur nokkra sérstöðu þegar um bátavélar er að
ræða því Merkúr býður gírskiptingu með snuðloka. Þetta
þýðir að á 3-5 tonna trillu meb slíkum búnaði, þ.e. vökva-
gír og snuðloka, er hægt að stjórna hraða skrúfunnar mjög
nákvæmlega og allir snúningar að og frá bryggju eba við
baujur verða mjúkir og átakalausir.
„Þetta likar trillukörlunum afskaplega vel. Þetta er rosa-
lega flott," segir Jóhann Ólafur. „Trillukarlarnir eru fjöl-
mennir meðal okkar viðskiptamanna enda höfum við lagt
dæluna ganga
sem henta vel fyrir smábáta
áherslu á að vanda okkur fyrir litla manninn ef svo má
segja."
Vélarnar eru framleiddar í Japan og þar fer saman, að
sögn Jóhanns Ólafs, lítil fyrirferb, mikil orka og hágæða
framleibsla.
Fyrirtækið Arentsstál hf. við Eirhöfða annast alla við-
gerðaþjónustu fyrir Merkúr. Þetta er gamalt og gróið fyrir-
tæki sem býður fjölþætta
þjónustu fyrir sjávarútveg-
inn og verktaka.
En Merkúr hefur nú lagt
nýtt tromp á borðið sem
smábátaeigendur eiga erfitt
með að standast. Trompib
eru Yamaha-bátavélar með
hældrifi. Þetta eru fjögurra
og sex strokka dísilvélar
165 og 240 ha. Drifið er
það fullkomnasta sem hef-
ur verið smíðað því það er
með vökvakúplingu sem
tryggir mjúka og hljóðlausa
skiptingu án högga.
Þetta er vél sem á eftir að
slá í gegn meðal íslenskra
smábátaeigenda en það er
séríslenskt fyrirbæri að
nota vélar af þessu tagi í
hraðfiskibáta en með vél
eins og þessari gengur báturinn eins og hraðbátur. Þessi vél
er eins og snibin fyrir þarfir íslendinga sem vilja geta brun-
að á góðri ferð á miðin og siglt í land á þokkalegri ferð með
hlaðinn bát. Þessi vél fær nú afar góða dóma í erlendum
fagblöðum.
Varstu þú einhvern tímann á sjó Jóhann Ólafur?
„Ég er vélfræðingur og var talsvert til sjós á mínum
námstíma, bæði á togaranum Ágúst frá Hafnarfirði og hval-
bátunum, og varð svo frægur að vera háseti á síðutogaran-
um Rööli."
Leiðin lá síban um Heklu og Bílaborg áður en kom til
samstarfs við Lýð Björnsson sem á Merkúr hf. Hjá Merkúr
vinna 13 menn í tveimur deildum. Véladeild annars vegar
og byggingavörudeild hins vegar.
„Vib lítum björtum augum á framtíðina. Vib erum með
vel þjálfað fólk og góða aðstöðu enda vex okkur stöðugt
fiskur um hrygg. Okkar markmið er að veita toppþjónustu
bæði í sölu og öllu öðru sem lýtur ab þjónustu vib við-
skiptavini okkar." O
Jóhann Ólafur Ársælsson framkvæmdastjóri Merkúrs.
12 ÆGIR MAÍ 1994