Ægir

Volume

Ægir - 01.05.1994, Page 44

Ægir - 01.05.1994, Page 44
Vinnslubúnaöur: Skipið er búib rækjuvinnslubúnabi frá Klaka sf.( sem einnig annaðist niðursetningu á búnaði. Bún- aður er til flokkunar, suðu, pökkunar og frystingar. Flokk- unarvél er frá Carnitech af gerð BSL; rækjusjóðari (breyttur) frá Klaka með olíukyndingu og 15 KW rafelementi; kör, færibönd o.þ.h. frá Klaka; tölvuvogir frá Póls-Rafeindavör- um hf., þrjár af gerð S125; auk þess bindivél o.fl. Frystibúnaður: Á vinnsluþilfari eru tveir láréttir 14 stöðva Gram plötufrystar af gerð HPF-M-2-30-14, afköst 5 tonn af rækju á sólarhring hvor. B.b.-megin á efra þilfari er lausfrystir frá Slippstöðinni/Gram, afköst 5 tonn af rækju á sólarhring. Loft og síður vinnuþilfars eru einangraðar með steinull, loft klætt með plasthúðuöum krossviði og síður með ryðfríu stáli. Fiskilest (frystilest) Almennt: Lestarrými er um 125 m3 að stærð og er lestin útbúin fyrir geymslu á frystum afurðum. Frágangur, búnaður: Síður, þil og botn lestar er einangrað með polyurethan og loft með steinull, og er lestin klædd meö plasthúðuðum krossviði. Kæling er með kælileiðslum í lofti lestar og lestinni er skipt í hólf meö tréborðauppstill- ingu. Lúgubúnaður, afferming: Aftast á lest, s.b-megin, er eitt lestarop (1500 x 1820 mm) meö álhlera á karmi. Fiskilúga er fremst á vinnuþilfari. Á efra þilfari, upp af lestarlúgu á neðra þilfari, er losunarlúga (2150 x 2180 mm) með stál- hlera slétt við þilfar. Fyrir affermingu er losunarkrani, s.b.-megin á efra þilfari. Vindubúnaður, losunarbúnaður Almennt: Vindubúnaður skipsins er vökvaknúinn (há- þrýstikerfi) frá Nörlau A/S og er um að ræða tvær togvindur, fjórar grandaravindur, tvær hífingavindur, tvær hjálpar- vindur afturskips fyrir pokalosun og útdrátt á vörpu og tvær bakstroffuvindur. Auk þess er viðbótartogvinda frá Fish and Ships Gear A/S fyrir miðvír og ein Pullmaster smávinda fyrir hífingu á lóði. Losunarkrani er frá HMF. Togvindur: Aftast á neðra þilfari, í sérstöku vindurými, eru tvær togvindur (splittvindur), hvor búin einni tromlu og knúin af einum vökvaþrýstimótor. Tæknilegar stærðir (hvor togvinda): Tromlumál.................. 325 mmo x 1250 mmo x 870 mm Víramagn á tromlu.......... 1460 m af 22 mmo vír Togátak á miðja tromlu..... 8.9 tonn Dráttarhraði á miðja tromlu.. 69 m/mín Vökvaþrýstimótor........... Bauer HMH 9-130-110 Afköst mótors.............. 140 hö Þrýstingsfall................ 180kp/cm2 Olíustreymi................ 370 1/mín Þriðja togvindan er af gerð SP16 (notuð), búin einni tromlu (325 mmo x 1200 mmo x 1100 mm), sem tekur um 1500 m af 24 mmo vír og knúin af Hagglunds 6170 vökva- þrýstimótor. Togátak vindu á miðja tromlu er 8.5 tonn. Vindan er staðsett á efra þilfari, b.b.-megin, framan við brú. Grandaravindur: Grandaravindur eru fjórar af gerðinni MJ9, staðsettar fremst á efra þilfari. Hver vinda er búin einni tromlu (300 mmo x 1450 mmo x 510 mm) og knúin af Bauer HMJ 9-9592 vökvaþrýstimótor, togátak vindu á tóma tromlu (1. víralag) er 10 tonn og tilsvarandi dráttar- hraði 65 m/mín. Tvær vindurnar eru auk þess búnar útkúpl- anlegum keðjuskífum, gerö MJ9-k20.5, og notaðar einnig sem akkerisvindur. Hífingavindur: Tvær hífingavindur af gerðinni MB7 eru á brúarreisn, aftan við brú. Hvor vinda er búin einni tromlu, önnur með tromlumálin 273 mmo x 650 mmo x 300 mm, RÁÐGARÐUR SKIPARÁÐGJÖF Óskar eigendum og áhöfn Eyborgar EA til hamingju með nýja skipið. Einnig þökkum við ánægjulegt samstarf við hönnun og smíði skipsins. SNORRISNORRASON RÁÐGARÐUR SKIPARÁÐGJÖF HF. Nóatúni 17 - Pósthólf 5040 - 125 Reykjavík Sími 91 - 68 66 88 - Telefax 91 - 62 36 88 44 ÆGIR MAÍ 1994

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.