Ægir - 01.10.1994, Page 12
SJÁVARSÍÐAN
VIÐ NÁNARI ATHUGUN | '. |{ SEPTEMBER
Sinkframleiðsla veldur
kadmíummengun
Bandaríkjamenn sýna áhuga á að
reisa hér sinkverksmibju
Hugmyndir hafa veriö á kreiki um hugsanlega byggingu sinkverksmiðju hér á
landi. Fulltrúar bandaríska fyrirtækisins Zink Corporation of America komu
hingað til lands í byrjun september og kynntu sér ýmsar aðstæður. Hér er um
frumathugun að ræða en það sem freistar erlendra stórfyrirtækja er ódýr orka en
sinkframleiðsla er orkufrekur iðnaður.
Heimsframleiðslan á sinki er 6-7 milljónir tonna. Það er einkum notað til að
húða stál til varnar tæringu.
Bandarísku fulltrúarnir komu hingað á vegum markaðsskrifstofu iönaðarráðu-
neytisins og Landsvirkjunar. Andrés Svanbjörnsson starfsmaður þar segir það
samræmda stefnu skrifstofunnar að segja ekkert um málið opinberlega að sinni.
Það er hinsvegar staðhæft í Mbl. 28. sept. sl. að bandarísku fulltrúunum hafi lit-
ist vel á aðstæður og kanni nú vilja fjárfesta til þess aö reisa 7S þúsund tonna
verksmiðju hérlendis. Helguvik, Vogastapi, Keilisnes, Straumsvík og Grundar-
tangi hafa veriö nefndir sem staðir sem kæmu til greina fyrir verksmiðjuna. Fuli-
yrt er að bygging hennar tæki tvö ár og að verksmiðjan þyrfti 300 starfsmenn.
Mikil mengunarhætta
„Sinki og framleiðslu þess fylgir alltaf kadmíummengun," sagði Guðjón Atli
Auðunsson forstöðumaður snefilefnadeildar Rannsóknastofnunar fiskiönaöar-
ins í samtali við Ægi. Snefil-
efnadeildin hefur unnið að
rannsóknum og eftirliti á lífríki
sjávar við ísland og meðal ann-
ars fylgst með kadmíummeng-
un. Kadmíum er þungmálmur
sem er álitinn jafnhættulegur
blýi og kvikasilfri sem mengun-
arvaldur í lífríkinu. Kadmíum
mælist fremur hátt víða í sjó
við ísland og er talið vera af
náttúrulegum völdum tengt
eldsumbrotum. Guðjón taldi
mjög brýnt að fylgjast vandlega
meö allri mengun frá málm-
bræðslu eins og sinkbræðslu og
benti á aö til væri tiltölulega fullkominn mengunarvarnabúnaður s.s. vot-
hreinsibúnaður, en kadmíum fyndist meira í útblæstri frá slíkri vinnslu fremur
en frárennsli.
Kadmíummengun hefur t.d. í Japan valdið sjúkdómum meöal þeirra sem
neyta kadmíummengaðra matvæla, t.d. hrísgrjóna. Kadmíum veldur nýrnasjúk-
dómum og ýmsum truflunum á starfsemi líkamans.
í viðauka nýlegrar mengunarreglugerðar nr. 481 frá 1994 er aö finna ákvæði
um leyfileg hámörk kadmíummengunar við margskonar vinnslu. □
Guðjón Atli Auðunsson á Rf.
Morgunblaðið staðhæfir að
MÆ söluhorfur á sild séu afleitar
þrátt fyrir horfur á góöri vertíð.
Síldarútvegsnefnd sýnist ekkert aö-
hafast. í samræmi við EES legðist af
tollfrelsi sem við íslendingar höfð-
um fram að þessu notið á norræn-
um mörkuðum. Þeirri hugmynd er
varpað fram að góður kostur sé að
selja síldina beint um borð í rúss-
nesk vinnsluskip á miðunum en
lög banna löndun beint um borð í
erlend verksmiðjuskip.
VV Sjávarútvegsráöuneytið hafn-
Kfl ar umsókn tveggja fyrirtækja
um leyfi til háhyrningaveiöa. Ráðu-
neytið telur ekki verjandi að fórna
meiri hagsmunum fyrir minni.
Þrír bátar eru sviptir veiði-
leyfi fyrir að landa afla fram-
hjá vigt.
■■■ 3000 bleikjur settar í eldi í
Kfl tveimur körum í gömlum
flökunarsal í frystihúsi á Borgarfirði
eystra. Tveir ungir menn hafa veitt
þá í gildrur í Vatnsskarðsvatni og
Tjarnarbotnum og gera þessa til-
raun til eldis.
■■■ Sjö bátar frá Vestmannaeyj-
Kfl um, samtals 288 rúmlestir,
settir í úreldingu.
PVJV Varðskipið Óðinn fær ekki
■íl hafnarleyfi í Hammerfest í
Noregi fyrr en eftir afskipti utanrík-
isráöuneytis. Fimm skipverjar af ís-
lenskum Smugutogurum settir
meiddir í land.
■M Fiskistofa sætir harðri gagn-
liii rýni fyrir að láta afskiptalaust
að fiski sé hent í stórum stíl og fiski
landað framhjá vigt. Útgeröarmenn
ásaka Fiskistofu um að hundsa
ábendingar um brot og aðhafast
ekkert svo jafnvel þeirra eigin eftir-
litsmenn séu að gefast upp. Þeir
krefjast þess að sökudólgar séu
nefndir opinberlega. Fiskistofa segir
eftirlit sitt skilvirkt og hafnar öllum
ásökunum.
PPJ Akurnesingar ætla að stofna
■Ifl fyrirtæki um veiðar, vinnslu
12 ÆGIR OKTÓBER 1994