Ægir - 01.10.1994, Blaðsíða 26
Veður og ísing
í Smugunni
Sókn íslenskra togara í Smuguna og á Svalbarða-
svæðið hefur stóraukist í sumar og haust. Veiöar í
Smugunni geta verið mikið hættuspil stóran hluta
ársins. Þaðan er löng sigling í var þegar óveður
geisa og ísing getur hlaðist á skipin á skömmum
tíma. I ofanálag ríkir nær samfellt heimskauta-
myrkur þarna norðurfrá frá því snemma í október
og fram í marsmánuð.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.
Flestir ef ekki allir íslendingar, sem nærri fiskveiðum og
útgerð hafa komið, hafa heyrt getið hins hörmulega slyss á
Nýfundalandsmiðum í febrúar 1959 þegar togarinn Júlí frá
Hafnarfirði fórst með allri áhöfn. Sex aðrir íslenskir togarar
sluppu við illan leik eftir margra klukkustunda ísbarning í
miklu illviðri. Óhug sló að íslensku þjóðinni eftir atburð
þennan og má segja að úthafsveiðar hafi í kjölfarið að
Einar Sveinbjörnsson.
mestu lagst af, a.m.k. yfir vetrartímann. Síðan þá hefur heil
kynslóö af íslenskum sjómönnum og skipstjórnendum vax-
ið úr grasi.
Guðjón Ármann Eyjólfsson, skólameistari Stýrimanna-
skólans í Reykjavík, ritaði í desemberhefti Ægis á sl. ári
þarfa ádrepu þar sem hann minnti á hætturnar sem veiðar
í ísköldum vetrarsjó geta haft í för með sér. í grein hans
kom fram að síðasta alvarlega sjóslysið hér við land, sem
beinlínis er rakið til yfirísingar, hafi verið í febrúar 1968. Þá
fórust 18 Bretar og 6 íslendingar í ísafjarðardjúpi. Vest-
fjarðamið standast þó engan veginn samanburð við Smug-
una í miðju Barentshafinu hvað ísingarhættu áhrærir. Því
Mynd 1. Helstu hafstraumar í Barentshafi. Fjólubláa línan
sýnir algenga legu hitaskila í sjónum.
Mynd 2. Útbreiðsla hafíss í Barentshafi. Hafís lokar
næstum allri Smugunni að vetrar- og vorlagi í mestu
hafísárum. Eins og sést á myndinni er þó mikill munur á
útbreiðslunni milli ára.
—— Minnsta hámarksútbreiðsla á árunum 1979-1985.
■— Mesta hámarksútbreiðsla á árunum 1979-1985.
26 ÆGIR OKTÓBER 1994