Ægir - 01.10.1994, Page 17
Greenpeace skrifar um þorskinn
Greenpeace hefur gefið út skýrslu á íslensku sem ber heitið: Lífríki sjávar.
Framtíðaröryggi, þorskveiðar í ijósi umhverfisáhrifa.
Eins og ráða má af titlinum fjallar skýrslan einkum um þá hættu sem líf-
ríki sjávar stafar af efnamengun og ofveiði. í fyrsta kafla skýrslunnar segir:
„Hvert sem litið er má sjá hættumerki. Þær ógnir sem nú steðja að vist-
kerfum jarðar eiga sér enga hliðstæðu í sögunni. Hvergi er þetta jafnljóst og
við Norður-Atlantshaf, við strendur þéttbyggðustu iðnaðarsvæða heims og á
hinum gjöfulu fiskimiðum norðurhvels jarðar. Sýnilegt er hvert stefnir. Ef
ekki verður gripiö til aðgerða til að draga úr þessari ógn gætu vistkerfi
ákveðinna svæða hrunið gjörsamlega. Þorskurinn, ein mikilvægasta fiskteg-
und jarðar, gæti horfið."
í skýrslunni er dregin upp dökk mynd af áhrifum eiturefnamengunar á
fiskveiðar og sérstaklega er athyglinni beint að lífrænum klórefnasambönd-
um og þrávirkum efnum sem berast eftir fæöukeöjunni og safnast fyrir t.d. í
þorsklifur. Hnattræn hringrás ýmissa eiturefna er höfundum og talsvert
áhyggjuefni en hátt hlutfall ýmissa eiturefna hefur t.d. mælst í ýmsum heim-
skautadýmm víðsfjarri uppsprettum mengunarinnar. Þannig hefur eiturefnið
toxafen mælst í fiski í Eystrasalti og Norðursjó en efnið er notað til að út-
rýma skordýmm við baðmullarrækt á eyjum í Karabíska hafinu. Þorski er sér-
lega hætt við að safna í sig spilliefnum úr þeim dýmm sem hann nærist á.
Höfundar skýrslunnar eru dr. Paul Johnston og Ruth Stringer sem starfa á
rannsóknastofu Greenpeace við háskólann í Exeter á Englandi. Árni Finns-
son og Sigurður Þór Salvarsson höfðu umsjón með íslensku útgáfunni. □
Norbmenn auka sölu á
eldislaxi og urriða
Fyrstu átta mánuði ársins fluttu Norð-
menn út tæplega 96 þús. tonn af eldis-
laxi fyrir samtals 37 milljarða ísl. kr.
Meðalverð á þessum tíma var um 350
ísl. kr. fyrir kílóið og hafði lækkað úr
375 krónum sem var meðalverð á sama
tíma í fyrra. Stærstur hluti þessa eða
78,8 þúsund tonn var fluttur út ferskur.
Alls var fluttur út eldislax til 51 lands
frá Noregi í fyrra. Stærsti markaðurinn
utan Evrópu er Japan en Þýskaland er
stærsti markaðurinn innan Evrópusam-
bandsins. í ágúst 1994 fengust að með-
altali 398 ísl. krónur fyrir kílóið af laxi
til Japans en metverð í ágústmánuði
fékkst í Suður-Afríku, 677 ísl. krónur
fyrir kílóið.
Útflutningur á eldisurriða frá Noregi
hefur nær tvöfaldast það sem af er árinu
en alls hafa verið flutt út 3400 tonn.
Japanir hafa keypt 2800 tonn af því og
greiða 335 ísl. krónur fyrir kílóið.
(Fiskaren sept. 1994.)
ORUGG KÆLIKERFI
ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Metnaður Kværner Eureka á íslandi
felst í að tryggja öryggi í við-
haldi og eftirliti á öllum
itegundum kælikerfa.
Starfsfólk sölu- og
þjónustudeildar Kværner
Eureka á íslandi er tilbúið til
þjónustu hvar og hvenær sem er.
Kværner Eureka a.s
á íslandi
Starvgarhyl 6*110 Reykjavfk • S(mi 685 320
ÆGIR OKTÓBER 1994 17