Ægir - 01.10.1994, Page 35
Séð fram eftir togþilfari. Þriðja togvindan
bakborðsmegin á bakkadekki.
Vélabúnaður
Framdrifs- og orkuframleiðslukerfi: Aðalvél skipsins er frá
MAK, sex strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eftirkæl-
ingu, sem tengist niðurfærslugír, með innbyggðri kúplingu,
frá Reintjes og skiptiskrúfubúnaði frá Ulstein. í skipinu er
búnaður til svartolíubrennslu, seigja allt að 600 sek Rl.
Tæknilegar upplýsingar (aðalvél með skrúfubúnaði);
Gerð vélar........................ 6M 552 C
Afköst............................ 3700 KW (5028 hö)
Snúningshraöi..................... 500 sn/mín
Gerð niðurfærslugírs.............. WGL 712/3.978:1
Niðurgírun........................ 3.978:1
Gerð skrúfubúnaðar................ SLO-1050/4S-3800
Efni í skrúfu..................... NiAl brons
Blaðafjöldi skrúfu................ 4
Þvermál skrúfu.................... 3800 mm
Snúningshraði..................... 125.7 sn/mín
Skrúfuhringur..................... Fastur, L/D= 0.5
Á niðurfærslugír er eitt aflúttak (1:3), sem við tengist rið-
straumsrafall frá ABB (Asea Brown Boveri) af gerð ALPC 560
C4, 1760 KW (2200 KVA), 3 x 380 V, 50 Hz, 1500 sn/mín.
í skipinu eru tvær Caterpillar hjálparvélar, staðsettar í
hjálparvélarými á milliþilfari. Önnur er af gerð 3508 DITA,
átta strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eftirkælingu,
674 KW (915 hö) viö 1500 sn/mín. Vélin knýr Stamford rið-
straumsrafal af gerð MHC 634 J2, 648 KW (810 KVA), 3 x
380 V, 50 Hz. Hin vélin er af gerð 3408 DITA, átta strokka
fjórgengisvél með forþjöppu og eftirkælingu 307 KW (417
hö) við 1500 sn/mín. Vélin knýr Stamford riðstraumsrafal
af gerð MHC 534 C2, 280 KW (350 KVA), 3 x 380 V, 50 Hz.
Minni vélin er útbúin sem neyðarvél með sjálfvirkri ræs-
ingu.
Fyrir hitun á svartolíu (forða-/daggeymar o.fl.), fiski-
mjölsverksmiðju, rækjusjóðara, upphitun íbúða o.fl. er af-
gasketill frá A. Halvorsen (Parat), búinn olíukyndingu. Há-
marksafköst í gufuframleiðslu eru 1920 kg/klst, þrýstingur 9
kp/cm2, miðað við afgas.
Stýrisbúnaður: Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin frá Ten-
fjord af gerö 18 M 260/2GM, snúningsvægi 18.3 tm, og
tengist uggastýri frá Ulstein (Hoyloftror).
Vélakerfi dieselvéla: Skilvindur eru fjórar talsins frá Alfa
Laval, tvær af gerð MMPX-304 SGP 11-50 fyrir svartolíukerf-
Grandaravindur frá Brusselle fremst
í toggangi.
ið, ein af gerð MMPX-304 SGP 11-50 fyrir gasolíukerfið og
ein af gerð LOPX-705 SFD-34-50 fyrir smurolíukerfið. Ræsi-
loftþjöppur eru tvær frá Sperre af gerð HL105, afköst 43
m3/klst við 30 bar þrýsting hvor, en auk þess er ein Sperre
vinnuloftsþjappa, afköst 75 m3/klst við 8 bar. Fyrir vélarúm
og loftnotkun vélar eru tveir rafdrifnir blásarar frá A/S
Miljoteknikk, afköst 26000 m3/klst hvor, og fyrir hjálpar-
vélarými er einn blásari, afköst 12000 m3/klst.
Rafkerfi: Rafkerfi skipsins er 3 x 380 V, 50 Hz fyrir mótora
og stærri notendur og 220 V, 50 Hz fyrir lýsingu og til al-
mennra nota í vistarverum. Hjálparvélarafalar eru gerðir
fyrir samfösun, en skammtíma samfösun er við alalvél-
arrafal. Fyrir 220 V kerfið er einn 230 KVA spennir frá Nora-
tel, 380/220 V. Til að fjarlægja tíðni-/spennusveiflur frá tog-
vindumótordrifum o.fl. er sérstakur 350 KVA riðajafnari,
sem jafnframt gegnir hlutverki spennis. í skipinu eru tvær
125A, 3 x 380 V landtengingar. Togvindur, grandaravindur
og flotvörpuvindur eru knúnar jafnstraumsmótorum, sem
fá afl frá riðstraumskerfi skipsins í gegnum thyristora til af-
riðunar.
Ýmis skipskerfi: í skipinu er austurskilja frá RWO, gerö
SKIT 1.0, afköst lm3/klst. Fyrir geyma er tankmælikerfi frá
Ulstein-Peilo, gerð Soundfast. í skipinu eru tvö ferskvatns-
framleiðslutæki frá Alfa Laval af gerö JWP-26-C80, afköst 10
tonn á sólarhring hvort. Þvottakerfi fyrir vinnsluþilfar er frá
Ice Cat, þrjú tæki. Fyrir vélarúm er C02- slökkvikerfi.
Kerfi fyrir vistarverur: íbúðir eru hitaðar upp með mið-
stöðvarofnum, sem fá varma frá afgaskatli um hitaskipti.
Loftræstingarkerfi fyrir íbúðir er frá A/S Miljöteknikk. Fyrir
innblástur er einn blásari með vatnshitaelementi, afköst
8200 m3/klst, og auk þess sogblásarar fyrir eldhús, salerni,
þvottaherbergi og sjúkraklefa. Vinnsluþilfar er loftræst með
þremur blásurum frá A/S Miljoteknikk, tveir fyrir innblást-
ur, afköst 7500 m3/klst hvor, og einn sogari, afköst 16000
m3/klst. Fyrir hreinlætiskerfi er ferskvatnsþrýstikerfi með
kút og tveimur Allweiler dælum. Fyrir salerni er sérstakt
vakúmkerfi frá Evak.
Vökvaþrýstikerfi: Fremri losunarkrani er með sambyggt
rafdrifið vökvaþrýstikerfi, en aftari með sjáfstætt rafdrifið
vökvaþrýstikerfi. Fyrir kapalvindu er rafdrifið lágþrýstikerfi
(40 bar) frá Ulstein-Brattvaag, tvær Allweiler snigildælur,
önnur af gerð PVGS 940-46, 872 1/mín, knúin af 71 KW raf-
Aðalvél skipsins, 5000 hestöfl,
er frá Mak.
ÆGIR OKTÓBER 1994 35