Ægir - 01.10.1994, Qupperneq 40
vinnsluvélum flyst með færibandakerfi ab hráefnisgeymi,
sem staðsettur er b.b.-megin á vinnsluþilfari, yfir mjölverk-
smiðjurými. í verksmiðjurými, undir neðra þilfari, er sam-
byggð fiskimjölsverksmiðja, afköst 25-30 tonn á sólarhring,
þar sem fullvinnsla á mjöli fer fram. Eftir sekkjun í 35 kg
poka er pokunum stúfað í mjöllest, aftan við mjölverk-
smiðjuna.
Fiskvinnslutœki o.fi.: í skipinu eru eftirtaiin fiskvinnslu-
tæki: Ein Baader 161 slægingar- og hausunarvél fyrir bolfisk;
tvær Baader 429A hausunarvélar (með innyflasugu) fyrir
karfa, grálúðu og bolfisk; ein Baader 185 PK tölvustýrð flök-
unar- og roðflettivél fyrir bolfisk; ein Baader 187 flökunarvél
fyrir boifisk (smáfisk); þrjár Carnitech rækjuflokkunarvélar
(fimm flokka) af gerð CT 1014-11; tveir Carnitech rækjusjób-
arar af gerb CT 1112-03; tvö Carnitech litunarkör af gerð CT
2111-01; og fiskimjölsverksmiðja frá Stord International af
gerb TW2. Tölvuvogir eru frá Marel, níu talsins auk
flæðivogar; sjálfvirk bindivél frá Strapack; sjálfvirkur
umbúðaprentari frá Willet; pönnuúrsláttarvél frá Odim og
mjölskilju- og sekkjunarbúnaður frá Jesma Matador A/S.
Frysting: Búnaöur til frystingar er frá Midt-Troms Kjöles-
ervice A/S og samanstendur af þremur sjálfvirkum plötu-
frystum frá Odim, einum handvirkum plötufrysti frá A/S
Dybvad Staal Industri og einum lausfrysti frá Landssmiöj-
unni/Midt Trorns Kjoleservice. Sólarhringsafköst í plötu-
frystum eru um 70 tonn og 7.5 tonn í lausfrysti miðað vib
flök. Búnaður er eftirfarandi:
Sjálfvirkir: Þrír láréttir 17 stöðva plötufrystar, plötustærð
2120 x 1040 mm (68 pönnu), afköst 18.8 tonn af flökum á
sólarhring hver miðað við 60 mm blokk, eða um 10 tonn af
rækju. Frystar eru gerðir fyrir 60 og 75 mm pönnuþykkt.
Handvirkur: Einn láréttur 15 stöbva plötufrystir, plötu-
stærð 1980 x 1230 mm (60 pönnu), afköst 14 tonn af
heilfrystum fiski á sólarhring.
Lausfrystir: Einn lausfrystir, búinn sex kæliblásurum, af-
köst 20 tonn af rækju á sólarhring.
Útfærsla á sjálfvirku plötufrystunum er þannig að færi-
bönd fyrir fæðingu og útlosun (aftan og framan við
frystana) eru með vökvalyftubúnaði en frystarnir í fastri
stöðu. Eftir að búib er að pakka afuröunum í öskjur, sem
komið er fyrir í pönnunum, fara pönnurnar sjálfvirkt inn í
frystitækin. Sjálfvirkni-búnaðurinn sér einnig um að losa
pönnunar úr tækjunum og einnig öskjurnar úr pönnunum
með sjálfvirkum úrsláttarbúnaði, og fara pönnurnar í þvott
og þaðan að pökkunarborði til endurfyllingar. Frosnu öskj-
urnar fara meb sér færibandi að pökkunar- og bindiaðstöðu,
þar sem öskjunum er handraöað i kassa og bundið um í
bindivél og kassarnir merktir með sjálfvirkri merkivél. Frá
bindivélinni fara kassarnir að lyftu sem flytur afurðir í lest.
Afurðir úr lausfrysti fara um sömu lyftu nibur í lest.
ísvél: í vélarreisn s.b.-megin á milliþilfari er ísvél frá
Sunwell af gerb IG 5.0, afköst 5 tonn á sólarhring. ísvélin
framleiðir svonefndan krapís, sem notaöur er til ab kæla
fisk í móttöku, blóðgunar-, geymslu- og kælikörum.
Loft og síður vinnslurýmis eru einangrub með steinull og
klætt er með plasthúðuöum krossviði í lofti og ryðfríu stáli í
síðum.
Fiskilestar (frystilest, mjöllest)
Almennt: Lestarými undir nebra þilfari skiptist í aðallest
(frystilest), sem er 836 m3, og mjöllest aftast fyrir miðju,
sem er 143 m3. B.b.-megin aftast, framan við mjöllest, er
mjölverksmiðjurými. Aðallest er útbúin fyrir geymslu á
frystum afurðum (-e30°C).
Frágangur, búnaður: Síður, þil og botn frystilestar (og
mjöllestar)er einangrað meb polyurethan og loft með stein-
ull. Þil að vélarúmi er einangrab með steinull. Klætt er með
stálplötum nema loft er klætt með vatnsþéttum krossviði.
Trégrindur eru á lestarbotni. Aðallest er kæld með kæli-
leiðslum í lofti lestar og er notaður umhverfisvænn kæli-
miðill, kældur með varmaskipti sem tengist NH3-kerfinu.
Lest er skipt í hólf með tréboröauppstillingu.
Flutningur frá vinnsluþilfari í lest fer fram með sérstakri
lyftu frá Odim, staðsett fremst s.b.-megin á lest. Frá lyftu
tekur við sjálfvirkt færibandakerfi (hringekju-) með lyfti-
búnabi frá Odim, sem er tæmt eftir að það er fullt af pökk-
um. Framantil í lest er sérstök umbúöalyfta, sem flytur um-
búbir úr lest upp á vinnsluþilfar.
Lúgubúnaður, afferming: Tvö lestarop eru á aðallest, annað
fremst og hitt aftast s.b.-megin, með álhlerum á lágum
körmum. B.b.-megin framantil er stigagangur niður í frysti-
lest og einnig er stigagangur niður í mjöllest og mjölverk-
smiðjurými. Á efra þilfari, upp af lestarlúgum á nebra þil-
fari, eru losunarlúgur meb stálhlerum slétt við þilfar. Á
neðra hvalbaksþilfari eru losunarlúgur sem veita aðgang að
losunarlúgum á togþilfari, auk losunarlúgu á efra hvalbaks-
þilfari fyrir fremri lúgur. Losun úr mjöllest er um smálúgu á
langþili, s.b.-megin, og upp um aftari lestarlúgu og tilheyr-
andi losunarlúgur.
Fyrir affermingu á frystum afurbum eru tveir losunar-
kranar, annar fyrir fremri lúgu og hinn fyrir aftari, jafn-
framt fer afferming á sekkjuöu mjöli fram um aftari lúgur.
Vindubúnaður, losunarbúnaður
Almennt: Vindubúnaður skipsins er rafdrifinn frá
Brusselle og er um að ræða þrjár togvindur, sex grandara-
vindur, tvær bobbingavindur, tvær hífingavindur, fjórar
hjálparvindur afturskips fyrir pokalosun og útdrátt á vörpu,
tvær flotvörpuvindur, og akkerisvindu, samtals 20 vindu-
einingar. Auk þess er skipið búib lágþrýstiknúinni kapal-
vindu frá Ulstein-Brattvaag, sex háþrýstiknúnum smávind-
um frá Ósey h.f. og Héðni h.f. og tveimur háþrýstiknúnum
losunar- og hjálparkrönum frá Bulklift A/S.
Togvindur: Aftantil á togþilfari, s.b.- og b.b.-megin, eru
tvær togvindur og sú þriðja er á framlengdu bakkaþilfari,
b.b.-megin yfir b.b.-togvindu á togþilfari. Togvindurnar
þrjár eru af geröinni 5202 (splittvindur), hver búin einni
tromlu og knúin af einum jafnstraumsmótor.
40 ÆGIR OKTÓBER 1994