Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.1996, Qupperneq 9

Ægir - 01.02.1996, Qupperneq 9
Nýr rækjutogari, Júlíus Hav- steen ÞH 1, kemur til heima- hafnar á Húsavík. Höfði hf. keypti skipið frá Grænlandi í stað eldra skips með sama nafni. Þess má til gamans geta að gamli Júlíus fékk nafniö Þór- unn Havsteen en það hét eiginkona Júlíusar Havsteen sýslumanns á Húsa- vík. Hann verður gerbur út frá Húsa- vík. Togaraútgerð ísafjarðar ætlar að láta smíða nýjan rækjutog- ara í Nauta skipasmíbastöbinni í Pól- landi í stab Skutuls ÍS sem fyrirtækiö hefur gert út undanfarin ár. Nýsmíbin verður rúmlega 60 metra langur frystitogari, sérbúinn til rækjuveiöa. aNýr rækjutogari kemur til heimahafnar á Skagaströnd. Skipið, sem heitir Helga Björg HU, er í eigu Skagstrendings og er keypt not- að frá Grænlandi, smíðað í Noregi 1977 en endurbyggt 1986. Gubbjartur ÍS, sem nú hefur vikið fyrir nýrra skipi, hefur verið seldur til Noregs. Talnaglöggir menn reikna út að Gubbjartur ÍS hafi fiskað fyrir tæpa sjö milljarða frá 1973, eða 88 þúsund tonn. Loönuvertíðin fer hægt af stab og helst að loðna veiðist í flottroll. Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna gengur frá stærsta samningi sem nokkru sinni hefur verib geröur vib Japana um sölu á frystri loðnu. Samn- ingurinn hljóbar upp á 20 þúsund tonn. Tölvuvætt upplýsingakerfi, Hafdís, sem Tæknivai hefur hannað og sett upp í rækjuverksmiðj- unni Bakka í Hnífsdal, vekur verb- skuldaba athygli. Kerfið tryggir upp- lýsingaflæði og eftirlit með byltingar- kenndum hætti. Rækjuverksmiðjan Pólar á Siglufirði kaupir Svalbak EA 302 af Útgeröarfélagi Akureyringa og hyggst gera hann út til rækjuveiða. Svalbakur er með elstu togurum, smíbaður í Noregi 1969 og er tæplega 800 brl. MAÐUR MÁNAÐARINS Maður mánaðarins er Halldór G. Eyjólfsson markaðsstjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna sem í janúargekk frá einum stærstu sölusamningum á frystri loðnu til Japan ásamt Jóni Magnúsi Kristjánssyni framkvæmdastjóra SH í Japan sem gerðir hafa verið eða um 20 þúsund tonn. „Ég er nokkuð sáttur með þessa samninga vegna þess að þeir taka meðal annars til sölu á smáloðnu og þar er að skila sér það markaðsátak sem SH gerði í fyrra," sagði Halldór í samtali við Ægi. Það er alltaf happdrætti hvort hægt er að standa við samninga og það tókst t.d. ekki í fyrra vegna óhagstæðs veðurs. „Menn eru betur undirbúnir nú og nýjir framleið- endur hafa bæst í hópinn og það ásamt ákvæðum samninganna um stærð loðnunnar gerir það að verkum að ég er bjartsýnn." Halldór lýsir samningaviðræðum að þessu tagi sem fundalotum frá morgni til kvölds með japönskum kaupendum. Ennfremur er hann í stöðugu sambandi við framleiðendur SH á íslandi að næturlagi á japönskum tíma. Halldór fæddist 27. júlí 1966 í Reykjavík. Hann er sonur Eyjólfs Halldórssonar stýrimanns Karenar Guðmundsdóttur. Hann varð stúdent frá MH 1986, lauk námi í vélaverkfræði frá Hl’ 1990 og MS í rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Hojskole í Kaupmannahöfn 1992. Hann hefur starfað hjá SH í tæp tvö ár en var áður hjá Samstarfsnefnd atvinnurekenda í sjávarútvegi, SAS auk þess að vinna ýmis störf til sjós og lands. Unnusta Halldórs erSolveig H. Sigurðardóttir lyfjafræðingur. ORÐ í HITA LEIKSINS „Ýsan á Fiskmarkaðnum kláraðist og við þurftum að fá sendingu úr Reykjavík.'' Mar- grét Kjartansdóttir verslunarstjóri lýsir fiskáti í Vestmannaeyjum eftir jól í Fréttum. „Þetta er álíka gáfulegt og að reyna að telja hárin á höfði sér með bundið fyrir augum og með boxhanska á höndunum." Arni Bjarnason skipstjóri á Akureyri EA segir Fiskifréttum álit sitt á þorskmælingum Hafró. „Það má vel vera að fólk sem ekkert þekkir til fiskveiða trúi þessu en sjómenn líta á þetta eins og hvert annað prump." Gunnar Arnórsson skipstjóri á Júlíusi Geir- mundssyni IS tekur í sama streng. „Menn mættu hafa það hugfast við fiskveiðiráðgjöfina að fiskurinn er með sporð og það virðist töluverð hreyfing á honum.“ Hallgrímur Guðmundsson skipstjóri á Happasæli áminnir fiskifræðinga í samtali við Fiskifréttir. „Við erum vaktaðir eins og strokufangar af Litla-Hrauni." Arnór Kristjánsson krókakarl lýsir Símakrók Fiskistofu í samtali við Eystrahorn. ÆGIR 9

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.