Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1996, Blaðsíða 25

Ægir - 01.02.1996, Blaðsíða 25
stofnunar fyrir ýmsan búnað fyrir kafara sem hann hefur umboð fyrir. „Við eiginlega gáfumst upp því það var alveg sama hvað við sendum þeim ítar- lega pappíra um skoðanir og prófanir hjá hinum og þessum prófunarstöðvum er- lendis og skírteini frá þeim. Þeir vildu alltaf meira en ég fékk aldrei vottorð frá þeim eða viðurkenningu. Hinsvegar eru þeir tilbúnir til að selja dýru verði minnsta viðvik. Ég bað þá einu sinni um að láta mig hafa breytingar á skipaskránni á tölvudiski einu sinni á ári. Það átti að kosta 10 þúsund krónur fyrir fjórum ámm. Ég þakkaöi pent fyrir mig og leitaði annað." Brunamálastofnun verri en Siglinga- málastofnun Jóhannes hefur einnig átt mikil sam- skipti við Brunamálastofnun og segir þá stofnun mun verri viðureignar en Sigl- ingamálastofnun. „Við höfum lengi kvartað undan því að hin ýmsu slökkvilið úti á landi eru að prófa reykköfunartæki án þess að hafa hundsvit á því sem þau em að gera. Þessu emm vib á móti en Bmnamálastofnun að- hefst ekkert, gefur þeim jafnvel samþykki sitt fyrir þessum gjörning. Það kom hingað maður frá þeim og vildi fá varahluti í reykköfunartæki sem hann ætlaði að nota á námskeiöi hjá stofnuninni. Ég fór að fetta fingur út í aö hann hefbi ekki réttindi til þess að skipta um þessa varahluti og þá spurði hann hver gæfi út slík réttindi og leyfi. Brunamálastofnun hefur aldrei sinnt eftirlitshlutverki sínu almennilega. Hjá slökkvilibum hér og þar um landið má finna reykköfunartæki sem aldrei hafa verið skoðuð, hylki sem eru komin langt fram yfir þrýstiprófun og þannig mætti lengi telja. Brunamálastofnun á að sinna þessu eftirliti en gerir það ekki. Þetta getur verið stórhættulegt því líftími flestra gúmmíhluta er 5 ár, eftir það geta þeir gef- ið sig þegar minnst varir. Mér finnst sem gömlum slökkviliðs- manni ab þetta ættu slökkviliðin að vita sjálf en veit vel ab þar sem þessu er sinnt í sjálfboðavinnu eru hlutirnir látnir dankast. Brunamálastofnun festi fyrir nokkmm árum kaup á tölvustýrðu prófunartæki fyrir á aðra milljón til að hafa í æfingagám stofnunarinnar og geta þannig prófað og annast skoðun á reykköfunartækjum fyrir slökkviiiðin. Ég segi nú bara: Guð hjálpi þeim. Brunamálastofnun á nokkur reykköfun- artæki sem notuð eru við kennslu. Öll tækin eru númeruð og það skráð í spjaldskrá. í gegnum tíðina hef ég svo fengið tæki frá ýmsum slökkviliðum sem eru samkvæmt spjaldskrá eign Brunamálastofnunar." Hefur þú engar áhyggjur af því að það komi þér í koll að gagnrýna þessar stofn- anir sem þú og þitt fyrirtæki eigib í raun- inni mikið undir? „Auðvitað hef ég það. En ég vil að hlut- irnir séu gerðir eins vel og hægt er þegar öryggi manna er í húfi og segi bara sann- leikann." □ NÝ HÖNNUN FRÁ SKIPATÆKNI OKKAR ÞEKKING YKKAí? TRYGGING 59 metra nóta og flottrolls veiðiskip með 1230 rúmmetra sjókælitönkum SKIPATÆKNI veitir alhliða ráðgjöf á sviði skipaverkfræði. Hönnun og útboð nýsmíða. Önnumst einnig verk- og útboðslýsingar á breytingum og viðgerðum. Gerum samanburð á tilboðum og sjáum um samningagerð, hönnun og útboð á fiskvinnslulínum, hallaprófanir og stöðugleika-útreikninga.Vinnum einnig matsgerðir. SKIPATÆKNIí SKIPATEIKNINGAR OG RÁÐGJAFASTÖRF CONSULTING ENG.& NAVAL ARCHITECTS GRENSASVEGI 13 108 REYKJAVIK SIMI 568 1610 BREFSIMI 568 8759 Margret ÆGIR 25

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.