Ægir - 01.02.1996, Blaðsíða 41
Tæknideild Fiskifélags íslands
Nýr rœkjutogari með frystibúnaði, m/s Júlíus Havsteen ÞH 1,
bœttist við flota Húsvíkinga 19. janúar sl., en þann dag kom skip-
ið í fyrsta sinn til heimahafnar eftir smávœgilegar breytingar á
Akureyri. Skip þetta, sem áður hét Qaasiutll, er smíðað árið 1987
(afhent í september) fyrir Grœnlendinga hjá Johs. Kristensen Skips-
byggeri A/S, Hvide Sande í Danmörku, smíðanúmer 183 hjá stöð-
inni. Skrokkur skipsins var smíðaður hjá DANYARD A/S í Álborg.
Hönnun skipsins var í höndum Nordvestconsult A/S, Álesund í
Noregi. Þess má geta að skipið er smíðað hjá sömu stöð og hannað
afsama aðila og Andvari VE (2211), sem keyptur var til landsins
í árslok 1993. Júlíus Havsteen ÞH er hins vegar mun stœrri en
skipin eru áþekk í byggingarlagi og fyrirkomulagi.
Hinn nýi Júlíus Havsteen ÞH kemur í stað Júlíusar Havsteen
ÞH (1462), 285 rúmlesta skuttogara með rœkjufrystibúnaði, sem
smíðaður var árið 1976 hjá Þ&E h.f. á Akranesi sem fjötveiðiskip.
Eftir að skipið kom til landsins voru gerðar smávœgilegar breyt-
ingar á því, sem einkum fólust í ákveðnum viðbótartœkjum í brú,
skutrennuloka, smávindum o.fl.
Júlíus Havsteen ÞH er í eigu Höfða h.f. á Húsavík. Skipstjóri á
skipinu er Jóhann Gunnarsson og yfirvélstjóri Ásmundur Halldórs-
son. Framkvœmdastjóri útgerðar er Kristján Ásgeirsson.
Almenn lýsing
Almennt: Skipiö er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki * 1A1, Stern Trawler,
IcelC * MV. Skipið er skuttogari með tvö heil þilför milli
stafna, skutrennu upp á efra þilfar, hvalbak á fremri hluta efra
þilfars og íbúöarhæð og brú á miðju hvalbaksþilfari.
Rými undir neðra þilfari: Undir neðra þilfari er skipinu skipt
með þremur vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rými,
taiið framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu; hágeyma fyrir
brennsluolíu; fiskilest með botngeymum fyrir brennsluolíu;
vélarúm með botngeymum fyrir ferskvatn í síðum; og aftast
skutgeyma fyrir brennsiuolíu, ásamt set- og daggeymum.
Neðra þilfar: Fremst á neðra þilfari er geymsla (með aðgangi
frá efra þilfari) ásamt keðjukössum, en þar fyrir aftan íbúðir
meðfram b.b.-síðu. Aftan við íbúðir og til hliðar við er vinnu-
þilfar (fiskvinnslurými) með fiskmóttöku aftast. S.b.-megin
aftast á neðra þilfari er geymsla og vélarreisn; b.b.-megin er
verkstæði, vélarreisn og stigahús; og stýrisvélarrými fyrir
miðju.
Efra þilfar: Framantil á efra þilfari, s.b,- og b.b.-megin, eru
þilfarshús meö gangi fyrir bobbingarennur þar á milli, opinn
að aftan. í umræddum þilfarshúsum eru íbúðir, en í aftasta
hluta s.b.-þilfarshúss er geymsla, en aftast í þilfarshúsum
ÆGIR 41