Ægir - 01.02.1996, Síða 46
Hífingarvindur: Á brúarþilfari, aftan við brú, eru tvær híf-
ingarvindur af gerð DMM 2202, hvor búin einni tromlu (380
mmo x 800 mmo x 400 mm) og knúin af einum M 2202
vökvaþrýstimótor, togátak vindu á tóma tromlu er 6.0 tonn
og tilsvarandi dráttarhraði 65 m/mín.
Hjálparvindur afturskips: Aftast á bakkaþilfari, b.b.-megin,
eru tvær hjálparvindur fyrir pokalosun og útdrátt á vörpu.
Vindurnar eru af gerðinni DMMA3, hvor búin einni tromlu
(320 mm0x57O mm0x25O mm) og knúin af einum MA3
vökvaþrýstimótor, togátak vindu á tóma tromlu er 3 tonn og
tilsvarandi dráttarhraði 72 m/mín.
Bakstroffuvindur: Tvær vökvaknúnar bakstroffuvindur frá
Vökvatæki hf. staðsettar undir toggálga.
Losunarkrani: Losunarkrani er frá SBG af gerð EHSC-16-2-
7.5 F, staðsettur á bakkaþilfari s.b. -megin, lyftigeta 2 tonn
við 7.5 m armlengd.
Akkerisvinda: Akkerisvinda er á bakkaþilfari, framan við
brú, og er af gerð B5-2k-2N, búin tveimur keðjuskífum og
tveimur koppum og knúin af MA4 vökvaþrýstimótor, togátak
á kopp 2.0 tonn og tilsvarandi dráttarhraði 56 m/mín.
Rafeindatæki, tæki í brú o.fl.
Ratsjá: Atlas 7600 ARPA
Ratsjá: Anritsu RA 722 UA
Ratsjá: Furuno FCR 1411 með AD 10S gýrótengi, ARPA og
plotter
Seguláttaviti: Iver C Weilbach, spegiláttaviti í þaki
Gýróáttaviti: C. Plath, Navigat XII
Sjálfstýring: C. Plath, Navipilot V
Sjálfstýring: Furuno FAP 50
Veginœlir: Ben
Gervitunglamóttakari: Furuno GP 70 (GPS)
Gervitunglamóttakari: Trimble NT200D (GPS) með leiðréttingu
Gervitunglamóttakari: Northstar (GPS) með leiðréttingu
Leibariti: Turbo 2000
Leiðarriti: Seaplot, tölvuplotter
Dýptarmœlir: Atlas 793DS (litamælir)
Dýptarmœlir: Furuno FCV161, litamælir
Höfuðlínumœlir: Furuno CN 22
Aflamœlir: Scanmar trollauga með SRU móttakara og
CGM05 litaskjá
Talstöð: Skanti TRP8000, miðbylgju- og stuttbylgjustöð
Talstöð: Sailor T 2031/R 2022 miðbylgjutalstöð
Örbylgjustöðvar: Tvær Sailor RT 143
Örbylgjustöð: Sailor RT 144C
Veðurkortamóttakari: Furuno FAX 108
Sjávarhitamœlir: Furuno T200
Af öðrum tækjabúnaði má nefna Phonico kallkerfi, Skanti
WR 6000 vörð, Thrane & Thrane telex, Xerox telefax og
gervitunglasamskiptatæki. í skipinu er olíurennslismælir frá
Ottó Bertelsen. Þá er sjónvarpstækjabúnaður með tökuvélum
á togþilfari og skjám í brú.
I brú eru stjórntæki frá Brattvaag fyrir togvindur, grandara-
vindur, hífingarvindur og hjálparvindur afturskips, en jafn-
framt eru togvindur búnar átaksjöfnunarbúnaði af gerð Data-
synchro F frá Brattvaag.
Af öryggis- og björgunarbúnaði má nefna: Einn Zodiac
slöngubát með utanborðsvél, tvo 20 manna Viking gúmmí-
björgunarbáta, flotgalla , Lokata neyðarbauju og reykköfunar-
tæki. □
MuncHr fyrir mshrfFnndur
Með 3. tbl. Ægis munu fylgja þrjár skipamyndir í hentugri
stærð til að ramma inn að gjöf til þeirra áskrifenda sem greitt hafa
áskriftargjald fyrir fyrrihluta ársins 1996. Skilvísir áskrifendur
fengu þrjár myndir í fyrra og hér er þessum sið haldið áfram.
Að þessu sinni eiga bátarnir á myndunum þremur það
sameiginlegt að vera trébátar smíðaðir á íslandi en þeim fer jafnt
og þétt fækkandi svo á vissan hátt eru þessir bátar fljótandi
minnisvarðar.
Sá stærsti er Gullberg NS, nú Glófaxi VE, 108 brl. smíðaður í
Vestmannaeyjum 1964 og mun vera stærstur íslenskra tréskipa.
Næstur honum í aldri er Hafborg HF 64, smíðuð á Akureyri 1957
og mæld 54 brl.
Aldursforsetinn í hópnum er svo Valdimar AK 15, smíðaður á
Neskaupstað 1949 og er hann 35 brl.
Nánari tæknilegar upplýsingar um skipin og feril þeirra munu
fylgja myndunum á sérstöku spjaldi með líkum hætti og í fyrra.
46 ÆGIR