Ægir - 01.10.1996, Page 10
VIÐ NANARI ATHIIGUN
íslendingar halda enn í víking:
Veiða smokkfisk og tannfisk
við Falklandseyjar
„Við höfum vandað vel allan undirbúning og erum bjartsýnir á að þetta beri árang-
ur,“ sagði Stefán Þórarinsson framkvæmdastjóri Island Fisheries Holdings Ltd. í sam-
tali við Ægi. Fyrirtæki þetta er sameign íslendinga og Falklandseyinga og hefur heim-
ili og vamarþing á Falklandseyjum. Tilgangur þess er að stunda veiðar á smokkfiski og
tannfiski við Falklandseyjar.
Það eru Grandi hf., Kristján Guðmundsson hf., JBG Falklands Ltd. og Sæblóm
hf. sem eiga Island Fisheries Holdings Ltd. íslensku fyrirtækin eiga samtals 70%
hlutafjár. Fyrirtækið hefur þegar keypt Tjald II SH og fer hann til línuveiða við
Falklandseyjar á tannfiski og fleiri djúpsjávartegundum en í janúar fer Engey RE til
veiða þar syðra og mun einkum stefna á smokkfiskveiðar. Skipstjóri á Tjaldi II verður
Hafsteinn Aðalsteinsson sem getið hefur sér gott orð sem línuskipstjóri. 12 íslending-
ar verða í 20 manna áhöfn Tjalds. Óráðið er hvernig Engeyin verður mönnuð en þeir
sem nú eru um borð ganga fyrir plássum og reiknað er með að svipuð skipting verði
í áhöfninni, þ.e. af 30 manns verði 17-18 íslendingar. Reiknað er með áhafnaskiptum
á tveggja mánaða fresti.
Sæblóm ehf. mun hafa yfirumsjón með útgerðarrekstrinum og verður útgerðar-
stjóri á þeirra vegum starfandi á staðnum. Sæblómsmenn eru engir viðvaningar í land-
námi af þessu tagi en þeir eru aðilar að Seaflower Whitefish Corporation í Namibíu og
eiga auk þess aðild að útgerð rannsóknarskips á þeim slóðum.
Tannfiskurinn, á ensku
Patagonian toothfish
eða Black Cod, erdjúp-
sjávarfiskur og er góður
markaður fyrir hann.
Fiskurinn verður ýmist
heilfrystur eða flakaður
og frystur um borð í
báðum skipum en ekki
er hægt að flaka hann í
vélum heldur verður að
handflaka. Erfitt er að
spá um afla, að sögn
Stefáns, en sóknar-
mark er á þessum veið-
um. Þó er reiknað með að veiðar Tjalds skili allt að 500 tonnum af frystum afurðum.
Stefán sagði að landnám af þessu tagi skilaði sér alltaf í tekjum fyrir fleiri en þá
sem taka beinan þátt í því. Sala á fjölmörgum íslenskum vörum tengdum sjávarút-
vegi eykst og hróður þeirra berst víðar.
„Það sem okkur vantar er að fyrirtæki eins og bankar, tryggingafélög og síðast
en ekki síst hið opinbera lagi sinn hugsunarhátt að þessum útgerðarháttum."
DNýr frystitogari, Helga RE 49,
kemur til landsins. Skipið er
smíðað í Slipen Mek. A/S í Sand-
nessjöen í Noregi. Það er 60.4 metr-
ar, 2.257 brt. með 4.590 ha. aðalvél.
Eigandi er Ingimundur hf. Verklok
töfðust um alls níu vikur vegna
verkfalla í Noregi. Skipstjórar á
Helgu verða Geir Garðarsson og Við-
ar Benediktsson en útgerðarmaður-
inn sjálfur, Ármann Ármannsson,
sigldi skipinu heim frá Noregi.
Aðalfundur Samtaka fisk-
vinnslustöðva haldinn í
Skíðaskálanum í Hveradölum. Meg-
inefni fundarins er bág staða botn-
fiskvinnslunnar en Þjóðhagsstofn-
un telur að greinin sé rekin með
8.5% halla að jafnaði.
íslenska sjávarútvegssýning-
in opnuð í Laugardalshöll að
viðstöddu fjölmenni. Þetta er
stærsta sjávarútvegssýningin hing-
að til. Sýningin stóð í fjóra daga eða
degi skemur en venja hefur verið
en þrátt fyrir það jókst fjöldi gesta
og mun hafa náð 14 þúsund
manns. Gerðir voru viðskiptasamn-
ingar á sýningunni upp á marga
tugi milljóna. Erlendir gestir og er-
lendar sendinefndir voru fjölmenn-
ari en nokkru sinni fyrr.
Samþykkt að stefna að sam-
einingu fjögurra sjávarút-
vegsfyrirtækja á Vestfjörðum. Þetta
eru rækjuverksmiðjurnar Ritur og
Básafell og útgerðirnar Togaraút-
gerð ísafjarðar sem gerir út Skutul
og Sléttanes sem gerir út samnefnd-
an togara. Gangi þetta eftir verður
til fyrirtæki sem veltir 2.5 til 3.0
milljörðum árlega og ræður yfir
5.500 tonna þ.í.g. kvóta.
aNý reglugerð sem bannar
flutning á óslægðum fiski
milli byggðarlaga mætir mótmælum
fiskverkenda sem telja þessa ráðstöf-
un óþarfa og í sumum tilvikum
kippa fótunum undan rekstri þeirra.
Nord-Morue, verksmiðja
Sölusambands íslenskra
10 ÆGIR