Ægir - 01.10.1996, Blaðsíða 38
Kveðja frá Skerplu
Skerpla tók við útgáfu Ægis fyrir
Fiskifélag íslands haustið 1993 og hefur
gefið blaðið út síðan. Á þessum tíma
hefur blaðið eflst geysilega og er orðið
vinsælt, bæði meðal áskrifenda og aug-
lýsenda, jafnframt því sem fjárhagsleg-
ur rekstur þess hefur verið tryggður.
Sömuleiðis hafa myndast tengsl milli
viðskiptavina okkar og starfsfólks
Skerplu sem við metum mikils. Það er
því með eftirsjá sem við kveðjum nú
áskrifendur Ægis, en orðið hefur að ráði
að Fiskifélag fslands taki aftur við út-
gáfu hans. Fyrir hönd samstarfsfólks
míns hjá Skerplu vil ég senda áskrifend-
um og öðrum viðskiptavinum okkar
bestu kveðjur og þakkir fyrir ánægju-
Iegan tíma. Myndin hér til hliðar var
tekin af starfsfólki Skerplu á sjávarút-
vegssýningunni í september síðastliðn-
um. Á henni eru, talið frá vinstri: Sig-
urlín Guðjónsdóttir auglýsingastjóri,
Páll Ásgeir Ásgeirsson blaðamaður,
Gróa Friðjónsdóttir skrifstofustjóri,
Bryndís Helga Jónsdóttir sölustjóri,
Ágústa Ragnarsdóttir grafískur hönnuð-
ur og Þórarinn Friðjónsson fram-
kvæmdastjóri.
Þórarínn Fríðjónsson.
7000 Poly-lce toghlerinn
Fyrirtækið J. Hinriksson ehf. framleiddi þann 31. október
sl. sinn 7000 toghlera. Þessi hleri er af gerðinni T 10H-EIXV,
en hann er 3200 kg og 9,7 fermetrar að stærð.
Fyrstu toghlerar fyrirtækisins voru framleiddir árið 1968
og voru þeir úr tvöföldu járnbyrði með tré í millilagi. Síðan
hefur framleiðslan verið látlaus og á hverju ári eru seld rúm-
lega 1000 tonn af toghlerum.
Stærsti markaður fyrirtækisins er innanlands, en útflutn-
ingur í heild er þó meiri. Fyrstu toghlerarnir voru seldir úr
landi árið 1972 og nú er framleiðslan seld til meira en 20
landa. Noregur er stærsti erlendi markaður fyrirtækisins og
næst eru Færeyjar, Bretlandseyjar og Þýskaland, en tog-
hlerar fyrirtækisins eru í notkun allt frá Kamtsjatka í Rúss-
land til Ástralíu og frá Alaska til Suður-Ameríku.
J. Hinriksson ehf. hefur hafið framleiðslu á flothlerum
með tvöföldu byrði. Árið 1968 var tré notað milli byrða, en
nú eru hlerarnir framleiddir með loftrými sem síðan er fyllt
með frauðplasti. Þessir hlerar eru notaðir til uppsjávarveiða
í flottroll.
Á þessum tímamótum er J. Hinriksson ehf. að setja upp
sitt eigið útibú í Mazatlán á Kyrrahafsströnd Mexíkó og er
fyrsta Þoly-lce toghleraparið að líta dagsins Ijós þar um
þessar mundir.
38 ÆGIR