Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.10.1996, Qupperneq 11

Ægir - 01.10.1996, Qupperneq 11
JULI MAÐUR MANAÐARINS fiskframleiðenda, formlega opnuð eftir endurbyggingu sem staðið hef- ur í rúmt ár. Af þessu tilefni efndi SÍF til hópferðar til Frakklands með fjölda viðskiptavina, velunnara, blaðamanna og sjávarútvegsráð- herra. Stálskip hf. í Hafnarfirði kaupa Særúnu GK 120 ásamt 760 tonna þorskígilda kvóta. Skip- ið sjálft er smíðað í A.-Þýskalandi 1959. Eftir kaupin ráða Stálskip yfir 4.600 tonna þorskígilda kvóta. Fyrsta síldin á haustvertíð- inni berst á land þegar Börk- ur NK kemur til Neskaupstaðar með 105 tonn af ágætri síld úr Berufjarð- arál. Börkur og Jóna Edvalds urðu fyrst á miðin og fengu bæði afla sem allur verður unninn til manneldis. Á fundi NAFO í Pétursborg er ákveðið að stefna að því að kvóti verður settur á skip sem stunda rækjuveiðar á Flæmingja- grunni. íslendingar, einir aðildar- þjóða, leggjast gegn þessum áform- um. Reiknað er með að kvóti ís- lenskra skipa á svæðinu verðir um 7.000 tonn þegar ákvörðunin tekur gildi. Það er um þriðjungur áætlaðs afla 1996. Hraðfrystihúsið Norðurtang- inn á ísafirði vill selja 80% hlutabréfa í fyrirtækinu. Ástæðan er annarsvegar bág staða þess í kjölfar erfiðleika og áfalla í útgerð Orra ÍS og hinsvegar tap á botnfiskvinnslu sem er uppistaðan í umsvifum fyrir- tækisins. í pottinum eru 3.000 tonna kvóti, ísfisktogarinn Orri og miklar fasteignir á ísafirði. Vinnslustöðin í Vestmanna- eyjum fær ekki að kaupa hlutabréf Þróunarsjóðs í Búlands- tindi á Djúpavogi. Heimamenn í hópi hluthafa ákváðu að nýta for- kaupsrétt sinn. Vinnslustöðin hef- ur haft mikinn áhuga á að fjárfesta í austfirskum sjávarútvegsfyrirtækj- um líkt og önnur stór sjávarútvegs- fyrirtæki. Maður mánaðarins er Hilmar Helgason nýráðinn forstöðumaður Sjómælinga ís- lands. Hilmar er fæddur í Borgarnesi 14. maí 1951, sonur hjónanna Helga Ormsson- ar og Huldu Sveinsdóttur. Hilmar er kvæntur Vilhelmínu R. Ólafsson og þau eiga fimm börn. Hilmar tók ungur kúrsinn til sjós, varð starfsmaður Hafskips árið 1972 og lauk prófi frá Stýrimannaskólanum 1979. Hann var stýrimaður og skipstjóri á ýmsum skipum félagsins uns það hætti rekstri. Hann réðist til Sjómælinganna í febrúar 1986 og fór það sama ár á sex mánaða námskeið í sjómæling- um í Bandaríkjunum. Námskeið þetta er á vegum sjó- mælingadeildar bandaríska sjóhersins, ætlað bæði út- lendingum og heimamönnum. Síðan hefur Hilmar starfað hjá Sjómælingunum við mælingar á sjó og eftirvinnslu í landi. Hann hefur verið skipstjóri á Baldri, mælingabát Sjómælinganna, sem er gerður út til mælinga á sumrin. „Mér sýnist að stærsta verkefni Sjómælinganna á næstu árum verði fólgið í tæknivæðingu og tölvuvæðingu í takt við kröfur tímans og viðskiptavinanna. Það þurfa helst öll kort að vera á tölvutæku formi. Samskipti og samvinna þjóða á norðurhveli í sjómælingum er einnig mikilvægur þáttur svo menn séu ekki hver í sínu horni að vinna sama hlutinn. “ Nú eru starfsmenn Sjómælinganna átta talsins en að sögn Hilmars er stefnt að því að þeir séu að jafnaði 10-12. Sjómælingarnar eru til húsa á Seljavegi 32 ORÐ í HITA LEIKSINS „Þetta er dýrasti farmur sem ég veit til að hafi farið með flugvél. Um 140 þekktir menn úr þjóðfélaginu, annað ekki, í einni og sömu flugvélinni, jú, einn kvenmaður. „Flugfarmurinn" var skrautlegur og dýr, toppskipstjórar, aflamenn, þekktir útgerðar- menn, framkvæmdastjórar og fiskifræðingar. Það á aldrei að leyfa svona stórum hópi af mikilsverðu fólki að fara saman í flugvél. Það hefði því verið óbætanlegt stórtjón fyrir allt þjóðfélagið hefði eitthvað óhapp komið fyrir í flugferðinni." Jósafat Hin- riksson lýsir heimkomu sýningargesta af Nor-Fishing sýningunni i Bergen fyrír mörg- um árum í Poly-lce, fréttabréfi J. Hinriksson. „Þeir sem lifa í einslitu samfélagi embættismanna, lækna, endurskoðenda og lög- manna, svo nokkuð sé nefnt, hafa greinilega lent ( hafvillum - eru langt frá íslenskum veruleika." Helgi Laxdal fjaiiar um gildi menntunar í VSFI-fréttum. „Ég skora á þá ráðamenn, sem með þennan málaflokk fara, að sparka nú í aftur- endann hver á öðrum og gera eitthvað rótttækt í málunum." Árni Bjarnason, 7. stýrimaður á Akureyrinni, hvetur til úrbóta í fjarskiptamáium í Verinu. „Ég hef aldrei haft áhuga fyrir því að eignast peninga og aldrei borist á ... Það verður enginn ríkur á því að þéna en menn geta orðið ríkir af því að spara." Aðal- steinn Jónsson, Alli ríki á Eskifirði, útskýrir hagfræði fyrir lesendum DV. ÆGIR 1 1

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.