Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1996, Síða 21

Ægir - 01.10.1996, Síða 21
i ____ s_r._ Síðumúli 13,108 Reykjavík rÍUpli yn Sírni: 568 1061, lax: 568 9061 • Vatnsþéttur á allt að 1 OOOm dýpi • Mælir samkvæmt reglugerð Fiskistofu • Mjög öflugur Windows hugbúnaður fylgir • Allt að 21000 mælingar, rafhlöðuending 5 ár • Hitasíritinn Seamon hefur selst til 30 landa “Hiti í geymslu og flutningi gefur best til kynna gœði vöru. ” Staðfestið gæði matvæla með hitasírita! Internet: http://www.vortex.is/hugrun Tölvupóstur: hugrun@vortex.is REYTINGUR Skjaldbaka á ferð Sæskjaldbakan Rosita sem sleppt var í sjóinn við strendur Kaliforníu fannst sextán mánuðum síðar skammt undan strönd Japans. Þá hafði Rosita ferðast 6.500 sjómílur sem lætur nærri að vera þriðjungur af ummáli jarðarinnar. Þetta ferðalag telja vísindamenn með ólíkindum af sjávarskepnu sem ekki andar með tálknum. Rosita var því miður látin þegar hún fannst við Japansstrendur. Hún hafði flækst í neti og drukknað. Það verða örlög margra skjaldbaka af þessari tegund. Þær eru fyrir vikið í umtalsverðri útrýmingarhættu og rannsóknir á ferðum þeirra eru liður í áætlunum um að vernda þær frá þeim örlögum. Skjaldbökur eins og Rosita geta orðið um 200 kíló að þyngd og geta lifað í hlýjum og tempruðum sjó víðast hvar á hnettinum. (Seafood, ágúst 1996) Risavaxnir ormar finnast á hafsbotni Franskir vísindamenn hafa fundið allt að tveggja metra langa orma á rúmlega 8.500 feta dýpi í Kyrrahafi. Nokkur eintök hafa náðst lifandi upp á yfirborð sjávar og er verið að rannsaka þá og finna þeim stað í dýraríki sjávarins. Þessir sérstæðu risaormar fundust í nágrenni heitra uppspretta á hafsbotni en megintilgangur vísindamannanna var að rannsaka örverur sem lifa í slíku umhverfi. (Seafood. ágúst 1996) ÆGIR 21

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.