Ægir - 01.10.1996, Page 25
þessu sambandi sem talinn er of gamall og
úreltur og sóknargeta flotans ekki í samræmi
við veiðina. Uppi á Akranesi er verið að end-
urnýja Bjarna Ólafsson og kaupa annað skip
frá írlandi. Nýja skipið er 2.000 rúmmetrum
stærra en það gamla og verð á hverjum
rúmmetra til úreldingar er 60 til 90 þúsund
krónur. Finnst þér ástæða til að víkja frá regl-
unum fyrir loðnuflotann sérstaklega?
„Það kemur ekki til greina. Við erum
hættir að hólfa flotann niður eftir veiðum.
Dæmið um loðnuflotann er ágætt. Meðan
veiðarnar voru minni og afkoman léleg
voru menn ekkert að velta þessu fyrir sér.
Nú hefur þetta breyst og menn fara í endur-
nýjun og eru að því í óða önn þrátt fyrir
meint óréttlæti endurnýjunarreglna. Mér
finnst ekkert ósanngjarnt að sá hluti flotans
sem stendur best að vígi taki þátt í þeim
kostnaði sem fylgir því að minnka afkasta-
getu heildarinnar."
Japanir vilja kaupa hval ef við göng-
um aftur í hvalveiðiráðið
Það hefur komið fram að þú stefnir að því
að hefja undirbúning þess að hvalveiðar hefj-
ist að nýju. Ertu bjartsýnn á að það takist?
„Það hefur verið sett á laggirnar nefnd
undir forystu Árna Árnasonar alþingismanns
sem mun undirbúa málið. Við stefnum að því
að leggja fram þingsályktunartillögu seinna í
vetur. Alþingi tók þá ákvörðun 1983 að mót-
mæla ekki núllkvóta Alþjóðahvalveiðiráðsins
og ríkisstjórnin getur ekki tekið ákvörðun um
að veiðar hefjist að nýju nema þingið breyti
þeirri afstöðu sinni. Það er forsenda þess að
hægt verði að hefjast handa á ný. Ef marka
má umræður í þinginu s.l. vor sýnist vera mikill vilji fyrir því að stíga þetta
skref.
Það er margt annað sem þarf að kanna. Kanna þarf afstöðu annarra þjóða
og möguleika á að selja afurðirnar. Ég átti mjög ánægjuleg samtöl fyrir
skömmu við stjórnvöld í Japan sem lýstu því í fyrsta sinn mjög skýrt að ef við
gerðumst á ný aðilar að hvalveiðiráðinu þá væru þau tilbúin til að kaupa
hvalafurðir af íslendingum.
Það sýnir í hnotskurn vanda okkar að þetta sama hvalveiðiráð bannar í
raun hvalveiðar svo aðild okkar yrði að verða með mótmælum gegn stefnu
ráðsins. Með því gætum við hugsanlega skapað okkur sterkari þjóðréttarlegan
gmndvöll til að hefja veiðar á ný.
WWTVWVYWWTTYYYYVWrYYVTYYYYYTYm
Viljir þú skila
vönduðu
verki þá
velur þú
ESAB
>AB
Allt til rafsuðu
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
PÓLLINN HF.
AÐALSTRÆTI 9-11, P.O.BOX 91, 400 ÍSAFJÖRÐUR
SÍMI 456 3092 • FAX 456 4592
ÍSLEITARKASTARAR • UÓSKASTARAR
SKIPSTJÓRAR. ÚTGERÐARMENN:
SELJUM HINA VIÐURKENNDU IBAMKASTARA.
ÞÝSK GÆÐAVARA.
3JAÁRATUGA REYNSLA VIÐ ERFIÐUSTU AÐSTÆÐUR
í HEIMI SANNA GÆÐIN.
RAFÞJONUSTA • RAFTÆKJASALA • RAFHÖNNUN • RAFVÉLAR • RAFEINDAÞJONUSTA • SIGLINGATÆKI • KÆLITÆKI
ÆGIR 25