Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.1996, Side 28

Ægir - 01.10.1996, Side 28
í grein, sem birtist í júlíblaði Ægis, voru rök færð fyrir því að fiskveið- ar hafi þegar á landnáms- og þjóðveldisöld verið mikilvægur þáttur í búskap landsmanna og að útræði hafi hafist mjög snemma í ýmsum verstöðvum, m.a. Vestmannaeyjum og Bolungarvík. Jón Þ. Þór Á 12. og 13. öld fór vegur og þýðing sjávarútvegs mjög vaxandi, fiskur og annað sjávarfang varð æ ríkari þáttur í mataræði landsmanna og á 14. öldinni varð skreið verðmætasta útfluningsafurð íslendinga. Á þeirri öld og fram á þá 15. urðu miklar breytingar á atvinnuháttum hér á landi, svo miklar að ekki verður líkt við neitt annað en byltingu. Hún hafði mikil áhrif á mótun samfélagsins, sem hér hélst við lýði allt fram á 19. og 20. öld, og átti mestan þátt í þeirri breyt- ingu, sem virðist hafa orðið á búsetu frá því sem var á landnámsöld og á fyrri hluta þjóðveldisaldar. Vaxandi fiskneysla á 12. og 13. öld átti sér ýmsar orsakir og voru sumar þeirra af breytingum í náttúrufari, en aðrar af menningarlegum rótum. Flest bendir til þess að fólki í landinu hafi fjölgað nokkuð á 12. og 13. öld, og ef til vill allt fram til Plágunnar miklu í upp- hafi 15. aldar. Við vitum að vísu ekki ná- kvæmlega hve margt fólk var búsett hér á landi á þessum tíma, en ekki er ólík- legt að það hafi verið á bilinu 40-60 þúsund um 1100, líkast til nær hærri tölunni, og hafi svo fjölgað nokkuð, ver- ið um 70-75 þúsund á 14. öld. Við þess- ar tölur ber að setja alla hugsanlega fyr- irvara, en ekki fer milli mála að fólks- fjölgunin jók þörfina fyrir matvæli og þar hefur varla öðru verið til að dreifa en fiskmeti og öðru sjávarfangi. Við upphaf landsnáms er talið að loftslag hér á landi hafi verið mun hlýrra en síðar varð og að meðalhiti árs- ins hafi verið nálægt 4,5 gráðum um 900. Hvort svo hafði verið lengi vitum við ekki, en flestir íslendingar kannast við þau ummæli Ara fróða að landið hafi verið skógi vaxið milli fjalls og fjöru er landnámsmenn bar að. Þau benda til þess að á þessum tíma hafi landið verið gróðursælla en síðar varð, og sennilega hefur gróðurbeltið náð lengra upp til fjalla og stærra svæði verið byggilegt. Þetta má m.a. ráða af því að sagnir eru um byggð langt inni á fjöllum á fyrstu öldum byggðar í landinu, á svæðum sem á síðari öldum hafa verið gróðursnattð öræfi. Margar þessara sagna eru vafalaust þjóðsögur en fyrir öðrum eru traustari heimildir og hafa ber í huga að þjóðsögur verða sjaldan til að tilefnislausu. Á 11., 12. og 13. öld virðist loftslag hafa kólnað nær stöðugt um 1300 er talið að meðalhitinn hafi verið um þrjár gráður, hálfri annarri gráðu lægri en um 900. Áhrif þessa urðu vitaskuld mest á viðkvæman gróður til fjalla og við bætt- ist ágangur manna og búfjár og bendir sitthvað til þess að þegar á 13. öld, ef ekki fyrr, hafi fjallabyggðir verið teknar að eyðast. Á sama tíma fór byggð í strandhéruðum að þéttast og fólki þar fjölgaði. Strandhéruðin voru hins vegar mörg hver lítt fallin til landsbúskapar og augljóst að íbúar þeirra urðu að reiða sig á sjávarafla til að sjá sér farborða. Allt þetta varð til þess að auka eftir- spurn eftir fiski og öðru sjávarfangi, og fleira koma til. ! Kristinni laga þætti, sem lögtekinn var á árunum 1122-1133, var að finna ýmis ákvæði um föstur og föstuhald. Samkvæmt þeim bar fólki að fasta einn dag í viku (föstudag) allan árs- ins hring, daginn fyrir ýmsar stórhátíðir kirkjuársins og á föstum, en lengstar þeirra voru jólafasta og langafasta. Á föstum var bannað að borða kjöt, en eta mátti fisk og hvali, aðra en rosmhvali (rostunga), og ekki mátti leggja sér sel til munns á föstum. Með Kristinna laga þætti var fiskneysla í raun lögboðin á ákveðnum dögum og árstímum og þá jókst vita- skuld fiskþörfin, en ekki aðeins í sjávar- byggðum heldur einnig til sveita. Áhrif þessa má ef til vill merkja af því að í grá- gás, lögbók íslenska þjóðveldisins, er sýnilega gert ráð fyrir því að fólk hafist við í fiskiskálum einhvern hluta úr ári og stundi þar veiðar. Fyrstu fiskiskálarnir hafa vafalaust ris- ið í útverum, líkast til í eyjum og á annesjum, þar sem stutt var á fengsæl mið og lending bærileg. Er ekki ósenni- legt að ýmis örnefni, sem hafa forliðinn skál eða skál(a) eða endinguna -skáli eða -skálar, hafi í upphafi verið veiðistöðvar þar sem reistar voru bráðabirgðavistar- verur, fiskiskálar, fyrir þá sem stunduðu þar veiðar á ákveðnum árstímum. Sem dæmi um slík örnefni, sem öll eru í ná- Fiskveiðar Islendinga á miðöldum — Jón Þ. Þór sagnfrœð- ingur. 28 ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.