Ægir - 01.10.1996, Blaðsíða 30
Tæknideild Fiskifélags Islands
Föstudagiim 25. október sl. kom Örn
KE 13 (1012) til hafnar í Njarðvík eftir
gagngera breytingu í Póllandi. Breytingin
fór fram í skipasmíðastöðinni Nauta í
Smíðað var nýtt framskip og það
tengt við gamla hluta skipsins. Þetta er
einstök breyting á fiskiskipi í eigu ís-
lendinga. Nýi framhlutinn er lengri,
breiðari og dýpri en sá sem fyrir var.
Skipið er rúmlega tvöfalt stærra í dag,
miðað við neðra þilfar, en þegar það
kom nýtt til landsins. Breyting sem þessi
er þekkt úr erlenda kaupskipaflotanum
en það má líta svo á að aftari hluti skips-
ins, með vélbúnaði og tilheyrandi kerf-
um, sé sá dýrari. En að öllum líkindum
ráða umdeildar úreldingarreglur um að
þessi leið er farin.
Hluti af kili gamla skipsins er enn til
staðar og leggst hann ofan á nýjan
kassakjöl sem fylgir nýja hlutanum. Nýi
Gdynia. Hönnun að breytingum sá Skipa-
tœkni elif. um. Skipið er í eigu Sólbakka
ehf. og framkvæmdastjóri er Öm Erlings-
son Skipstjórar eru Sigurður Sigurðsson og
Sœvar Brynjólfsson Yfirvélstjóri er Sigurgeir
Jónsson.
skrokkurinn er með 600 mm bandabili
og tengist gamla skipinu á milli banda
nr. 27 og 28 og hefur þetta band nr. 23 í
skipinu í dag. Utan á gamla hluta
skrokksins eru smíðaðar nýjar síður og
aftaná kemur nýr skutur. Skrokkurinn er
smíðaður eftir kröfum Norske Veritas.
Skrokkurinn er með tvö þilför, peru-
stefni og hvalbak að framan. Fremst
undir neðra þilfari er stafnhylki, fyrir
ferskvatn, sónar og hliðarskrúfurými
með botngeymum fyrir ferskvatn.
Fremst á neðraþilfari er stafnhylki,
keðjukassar og rými þar sem eru loft-
dælur (vakum) fyrir fisklosunarkerfi og
hjálparvél sem drífur bógskrúfu og raf-
kerfi skipsins. Þar fyrir ofan er bakki þar
sem er ísvél og geymslur. Lestarýminu
er skipt í þrjú meginrými með þver-
skipsþiljum sem hverju er skipt með
langskipsþiljum í þrjú hólf, botngeymar
fyrir brennsluolíu og ferskvatn eru und-
ir lestum. Lestarnar eru því níu hólf, en
þau ná frá botni og upp að efra þilfari
og eru loft, botn, útsíður, fram- og aft-
urþil klædd með ryðfríu stáli og ein-
angruð með Polyurethan. Stjórnborðs-
megin fyrir miðju skipi á neðra þilfari
liggur gangur á milli fram- og afturskips,
í miðjum ganginum er rými fyrir fisklos-
unarbúnaðinn, vakumdælukerfi, sjá
grein í 2. tbi. Ægis 1989. Fiskilestar
skipsins eru gerðar fyrir geymslu á fiski
sem kældur er með ís og blandast ísinn
aflanum um leið og honum er komið
fyrir í lestunum. Hægt er að blása lofti
neðst í lestamar til að dreifa kælingunni.
Vélbúnaður
Aftan á aðalvél kemur nýr niður-
færslugír og skrúfubúnaður, framan á
aðalvél er gamall deiligír og á hann
koma nýjar vökvadælur fyrir vökvakerf-
in. Endursmíðað stýri kemur á skipið.
HELSTU BREYTINGAR
30 ÆGIR