Ægir - 01.10.1996, Qupperneq 36
FERILL SKIPS
Skipið er smíðað í Ankerlökken Verft í Florö í Noregi árið 1966 og afhent í
júlí, smíðanúmer 72. Stöðin hefur smíðað ellefu skip fyrir Islendinga, þar af eitt
systurskip Arnar, Börk NK 120 (1020), í dag Guðmundur Ólafur ÓF 91. Samtals
voru byggð tíu skip af þessari gerð hjá þremur skipasmíðastöðvum.
Skipið hefur borið sama nafn frá upphafi, Örn. Fyrst Örn RE 1, eigandi var
Flið almenna Fiskveiðihlutafélag í Reykjavík. Næst er skipið Örn SK 50, eigandi
var Nöf hf. á Hofsósi. Þá næst Örn KE 13, eigendur Þorsteinn og Örn Erlings-
synir. Og í dag er hlutafélag um reksturinn Sólbakki ehf.
Breytingar sem áður hafa verið gerðar á skipinu eru þessar helstar: Árið 1976
var skipið lengt um 4,0 m og byggt yfir aðalþilfar þess frá hvalbak að yfirbygg-
ingu að aftan. Ný aðalvél, gír og skrúfubúnaður var sett í skipið 1977. Stækkun
á aðalvél var úr 800 hestafla Lister Blackstone í 1450 hestafla Alpha Diesel og
er sú vél enn í skipinu.
Ný brú ásamt þilfarshúsi var sett á skipið árið 1986 og árið 1987 var skipið
lengt um 6,0 m. skut breytt og sett perustefni á skipið ásamt bakka.
(1450 hö) við 800 sn/mín. Við vélina
tengist nýr niðurfærslugír og skipti-
skrúfubúnaður frá Alpha Diesel, niður-
gírun 3,85:1 og fjögurra blaða skrúfa
með 2700 mm þvermál. Við fremra
aflúttak er gamall deiligír frá Norgear og
á hann koma nýjar vökvadælur, frá
Denison, fyrir vökvakerfi skipsins.
Þrjár Cummins hjálparvélar eru í skip-
inu, ný sex strokka 316 KW (430 hö) við
1500 sn/mín. með 292 KW rafal, staðsett
fremst í skipinu. Tvær misgamlar í véla-
rúmi, önnur sex strokka 280 KW (380
hö) við 1500 sn/mín. með 240 KW rafal
og hin sex strokka 132 KW (180 hö) við
1500 sn/mín. með 90 KW rafal og
deiligír með tvær vökvadælur.
Stýrisvél er Frydenbo gömul, HS-30,
6,8 t.m.).
Hliðarskrúfur eru frá Schottel, fremri
skrúfan er ný, 1100 mmo, með 235 KW
rafmótor og með stiglausri rafstýringu
en sú aftari er gömul vökvaknúin.
íbúðir
Almennt: íbúðir eru fyrir 16 menn á
þremur hæðum. Undir neðra þilfari 4 x
2ja manna klefar. Neðra þilfar: 1x4
manna klefi, 1 x 2ja manna klefi og 1 x
1 manns klefi, borðsalur, eldhús, mat-
vælageymslur og snyrtiklefi. í þilfars-
húsi er 1 x 1 manns klefi, snyrtiklefi,
stakkageymsla og aðrar geymslur.
Móttaka og losun afla
Síld eða loðnu er dælt um borð með
fiskidælu í sjóskilju og síðan blandast ís
við aflann á leið til lesta skipsins.
Losun afla er með tveim MMC vakum
fiskidælum sem tengjast öllum lestarhólf-
um, einnig er ís dælt úr lestum, með þess-
um dælum, í ísblöndun við lestun. Afköst
er um 100 til 150 tonn á klst. á hvora
dælu. Við MMC dælurnar eru þrjár vak-
um dælur, hver með 37 KW rafmótor.
ísvél er frá Finsam, afköst um 30
tonn á sólahring.
Vindu - nótabúnaður
Tog/snurpivindur eru Rapp Hydema 2
x WDU 5000, tromlumál 324 mm d x
1300 mm D x 1130 mm, víramagn 1560
m af 28 mm vír, togátak á miðju víralagi
er 7,7 tonn og dráttarhraði 73 m/mín.,
kerfisþrýstingur 200 bar og aflþörf allt að
270 KW (367 hö). Ný vökvaknúin sleppi-
blökk er í sér gálga, Brunnar HB - 46 (ís-
lensk). Geila- og pokavinda eru gamlar
og uppgerðar. Nýtt akkerisspil er frá Rapp
Hydema með tvær keðjuskífur og kopp.
Búnaður frá Petrel: Kraftblökk er
Trident TNW 720, togátak tæp 26 tonn
og dráttarhraði 41 m/mín. Nótaleggjari
er NSC-7L, 55 t/m lyftigeta og togátak 10
tonn. Fiskidæla er 18 tommu gerð, Sp
457, afköst um 40001 á klst. Þilfarskrani
er KC 25/9, 25 t/m Iyftigeta. Til viðbótar
er gamall þilfarskrani, MTT, 20 tm.
Rafeindatæki, tæki í brú og
fleira
Siglinga- og staðarákvörðunartœki:
Racal Decca Bridgemaster ratsjá, JRC
JMA 3307 ratsjá. Robertsson AP 45 sjálf-
stýring, Robertsson RGC 10 gyroátta-
viti, gamall þakáttaviti, Trimble Navi-
gation Nav Trac og NT 200 D gerfi-
tunglamóttakarar. QuadFish QF 310
stjórntölva (tölvuplotter).
Fiskleitartœki: Furuno CSH-22F, nýr
sónar, Simrad CF 20C sónar, JRC FFV-
316 litadýptarmælir, Scanmar aflamælir.
Fjarskiptatœki: Sailor T 128 - R 105 tal-
stöð, Sailor RT 2047 og RT 144 örbylgju-
stöðvar, Delcom 2182 kHz vörður.
Önnur tœki: Vingtor VRC 15 kallkerfi,
Deckma eldvarnakerfi, Sailor SP 10
neyðartalstöð, eyðslumælir frá Örtölvu-
tækni. □
Aðalmál: í upphafi í dag
Mesta lengd 37,49 m 55,89 m
Breidd 7,60 m 10,00 m
Dýpt að neðra þilfari 3,95 m 4,60 m
Dýpt að efra þilfari 7,00 m
Rúmtala 1018,3 m3 2258,6 m3
Rými og stærðir
Eiginþyngd 698 t
Lestarrými 1160 m3
Brennsluolíugeymar 124,3 m3
Ferskvatnsgeymar 174,7 m3
36 ÆGIR