Ægir - 01.01.2000, Qupperneq 10
FRÉTTIR
Stáltak tekur við af Stálsmiðjunni hfv Slippstöðinni hf.
og þjónustudeild Kælismiðjunnar Frosts :
Sterkari vígstaða í samkeppni
við erlendan málmiðnað
Sameiningarferli Slippstöðvarinnar hf. á Akureyri og Stál-
smiðjunnar hf. í Reykjavík er lokið. Stjórnir fyrirtækjanna sam-
þykktu samruna þeirra 31. ágúst síðastliðinn og hefur verið unnið
að endurskipulagningu þeirra í hálft ár. Þetta stærsta málmið-
naðarfyrirtæki landsins hefur tekið til starfa undir nafninu Stáltak.
í lok samrunaferilsins nú í janúar var
var gengið frá sameiningu verktöku- og
þjónustudeildar Kælismiðjunnar Frosts
við Stáltak. Með því bætast við 34 starfs-
menn, 20 á Akureyri og 14 í Reykjavík.
Stáltak er öflugasta og stærsta málm-
iðnaðarfyrirtæki landsins og eru starfs-
menn nálægt 300 í Reykjavík og á Akur-
eyri. Aætluð velta verktöku- og þjón-
ustudeildar Kælismiðjunnar Frosts á
þessu ári er 500 milljónir króna og er
velta Stáltaks eftir sameininguna áætluð
rúmir 2 milljarðar króna á þessu ári.
Stjórn Stáltaks hefur ráðið Valgeir
Hallvarðsson framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins og Inga Björnsson aðstoðarfram-
kvæmdastjóra með aðsetri á Akureyri en
þar verður m.a. fjármáladeild Stáltaks
starfrækt. Stjórnina skipa Lárus Asgeirs-
son formaður, Hilmir Hilmisson varafor-
maður, Hjörleifur Jakobsson, Ásgeir
Pálsson og Jón Kristjánsson.
Slippfélagið hf. er stærsti hluthafinn í
sameinuðu félagi með 31 prósent
hlutafjár, en í hópi fimm stærstu hluthafa
eru einnig Málning hfl, Marel hf. og
Burðarás hf. með 9,8 prósent og
Olíuverslun Islands með 5,8 prósent.
Rekstur starfsstöðvanna tveggja á
Akureyri og í Reykjavík verður sjálf-
stæður, en veigamikil atriði í áætlana-
gerð, skrifstofu- og reikningshaldi, sölu-
og markaðsmálum verður sameiginlegur,
svo og tækni- og þróunarsvið starfsem-
innar. Sérstaklega hefur verið lögð áhersla
á að þróa sameiginlegt tölvukerfi sem
tryggir öfluga og virka stýringu á tíma-
og verktökubókhaldi og eftirliti með þvx.
Verkefnastaða Stáltaks er góð í upphafi
árs og er afkastagetan fúllnýtt í janúar en
það segja forsvarsmenn fyrirtækisins
óvenjulegt á þessum árstíma. Tilgangur-
inn með sameiningu Slippstöðvarinnar
og Stálsmiðjunnar undir merkjum Stái-
taks er fyrst og fremst að bregðast við
harðnandi samkeppni. Þeir segja að með
Saman mynda Stáismiðjan hf. og Slippstöðin
hf. stærsta máimiðnaðarfyrirtæki landsins.
tilkomu verktöku- og þjónustudeildar
Kælismiðjunnar Frosts náist fram veruleg
hagræðing þar sem verkefni og vinnu-
staðir falli í mörgum tilfellum saman.
Sameinaða fýrirtækið verði einnig sterk-
ara í samkeppni við erlenda aðila um stór
íslensk skipa- og landverkefni.
Evrópusambandið styrkir verkefni
Hafrannsóknarstofnunar
Evrópusambandið hefur ákveóið að
styrkja sérstakt verkefni sem Hafrann-
sóknarstofnun er aó vinna að um 200
milijónir króna. Með verkefninu er áæt-
lað að þróa reiknilíkan til að lýsa sam-
spili sjávardýra umhverfis ísland.
Hafrannsóknarstofnun hefur á undan-
förnum árum verið að þróa líkanið sem
tekur til allra helstu þátta sem vitað er
aó skipta máli í vistkerfum sjávar á
norðurslóó. Þættir eins og klak, vöxtur,
göngur, át og dauði fiska eða annarra
sjávardýra eru allir hafðir með í líkan-
inu.
Ástæða þess að leitað var til Evrópu-
sambandsins eftir styrk til verkefnsins
mun vera sú aó áhugi er fyrir því vióa
um heim og þar af leióandi nærtækt að
skilgreina verkefnið sem fjölþjóólegt.
Ætlunin er aó út úr verkefninu komi
aðferóarfræói sem verði nýtt sem rann-
sóknartæki til að skilja vistkerfi sjávar
betur. Reiknað er með að til lengri tíma
litió muni sá aukni skilningur sem fæst
Leiða til endurbóta við fiskveiðiráógjöf.
Byggóur verður upp gagnagrunnur og
þróaóar aðferóir til að lýsa Lífkerfum,
þróaðar stærófræóiaðferðir til aó meta
stuðla í slíkum líkönum og i allri þessari
vinnu verður stuðst vió nýjustu aðferóir
í tölvufræði og forritageró.
Aó þessu verkefni koma átta aðilar í
fimm löndum, ísLandi, Noregi, Dan-
mörku, Bretlandi og Frakklandi og er
áætlaó að verkefnió taki fjögur ár og
kosti um 500 milljónir króna. Auk Haf-
rannsóknarstofnunar koma að verkefn-
inu hér á landi Raunvísindastofnun og
Rannís.