Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2000, Blaðsíða 18

Ægir - 01.01.2000, Blaðsíða 18
SÍF HF Styrkur SÍF felst í áreíðanleika, stærð og þjónustu - segir Friðrik Pálsson, stjórnarformaður SÍF, um tækifæri fisksölurisans islenska á erlendum mörkuðum Mikið verk er framundan fyrir stjórn SÍF á næstu mánuðum, þrátt fyrir að hinn eigin- legi samruni SIF og Islenskra sjávarafurða hf. sé um garð genginn. Útfæra þarf stefnumótun fyrirtækisins og skapa fyrirtækinu ímynd á erlendum mörkuðum í sam- ræmi við hið breiða vöruúrval sem fyrirtækið hefur nú að bjóða. Friðrik Pálsson, stjórnarformaður SÍF, segir að árið 2000 verði starfsamt ár fyrir stjórnendur og dre- gur ekki dul á að í mörg horn verði að líta og að samrunanum muni fylgja kostnaður. Að sjálfsögðu sé stefnan sett á góða afkomu á árinu en hann telur að raunhæfara sé að gera kröfur til afkomunnar á árinu 2001 þegar hinni eiginlegu samræmingarvin- nu verði lokið. SÍF er risi á fisksölumarkaði í heiminum og ekki þarf að efast um að tækifærin sem hinu nýja fyrirtæki bjóðast eru mörg. En hvernig metur stjórnarfor- maðurinn nánustu framtíð SÍF, nú þegar fyrsta starfsárið er á upphafsreitunum. Friðrik Pálsson, stjórnarformaður SÍF „SÍF stefnir að því að halda áfram að veita viðskiptavinum sínum mjög góða þjónustu. Lykilorðin fyrir gott fisksölufyrirtæki eru áreiðanlei- ki, stærð og góð þjónusta og ástæðan fyrir þvf að ég nefni stærðina hér á meðal er sú að við hugsum okkur að komast eins nærri neytendum og hægt er. Slíkt er kostnaðarsamt og verður ekki framkvæmt nema að baki standi styrkur og mikil velta. SIF hefur markað sér þá stefnu í Frakklandi og víðar að selja til smásölukeðjanna undir eigin vörumerki þar sem það á við. Þannig getum við haslað okkur völl á viðkvæ- mum og dýrum samkeppnismarkaði en þessu fylgir kostnaður. Við settum talsverða fjármuni í árslok 1999 í að byggja upp okkar eigið vörumerki á ney- tendamarkaðnum í Frakklandi og munum gera það áfram á árinu 2000. Við teljum að með því séum við að tryggja okkur öruggari markað til lengri tíma og meiri verðmæti út úr veltunni. Við ríðum á vaðið í þessu efni á Frakklandsmarkaði en það er ljóst að á sama hátt munu aðrir markaðir fylgja í kjölfarið, ef vel gengur," segir Friðrik. SIE Slagurinn við hvíta kjötið Ollum sem fylgjast með í íslenskum sjávarútvegi varð strax ljóst þegar byrjað var að ræða sam- runa SÍF og ÍS að þar yrði til fisksölufyrirtæki með gríðarlegt úrval af sjávaraf- urðum. Friðrik dregur ekki úr að þetta sé styrkur fyrirtækisins, enda muni viðskiptamannahópurinn stækka verulega frá því sem áður var hjá hvoru fyrirtæki um sig. „Veltan verður mun meiri en áður og breiðara vöruúrval á erlendum mörkuðum á að skila okkur meiri tekjum upp í fastan kostnað. Framlegðin verður með öðrum orðum meiri og hana ætlum við okkur að nota til þróunar- og markaðsstarfs. Markaðsstarfið í heild sinni er mjög dýrt ef sinna á því af alvöru en fjármunirnir eiga að skila sér til baka ef rétt er á spilum haldið," segir Friðrik og telur aðspurður að markaðsliðurinn taki nú á tímum meiri fjármuni til sfn en á árum áður. Skýringuna segir hann einfaldlega samkeppni þar sem fiskurinn keppi við hvíta kjötið á matvörumörkuðum og ekki verði litið framhjá því að framleiðendur á kjúklingum og svínakjöti leggi mikla fjármuni í sitt markaðsstarf. „Ef fiskurinn á að geta staðist þessum vörum snún- ing í samkeppninni verður að leggja fjármuni á sama hátt í markaðsstarfið. Eg held að það skipti gífurlegu máli í þessu sam- bandi að muna eftir því að viðskiptavinir okkar úti í heimi hafa verið að taka breytingum á undanförnum árum. Það hefur orðið mikill samruni fyrirtækja í kaupendahópnum og á sumum mörkuðum eru það örfáir aðilar sem stjórna allri neytendaversluninni. Til þess að ná athygli þessara aðila þarf að hafa þá þrjá þætti sem ég gat um áðan, auk stöðugrar vöruþróun- ar. Þegar við mætum þessum stóru viðskiptavinum þá þýðir einfaldlega ekkert annað en hafa að baki sér mjög mikið vöruúrval og magn til að þeir hafi áhuga á að ræða við okkur. Þetta sýnir vel hvaða markað- ástæður búa að baki samruna SIF og IS í eitt félag," segir Friðrik.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.