Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2000, Blaðsíða 23

Ægir - 01.01.2000, Blaðsíða 23
á meira magni. Stærsti einstaki kostnaðarþátturinn í vinnslu á mjöli og lýsi er hráefnið. Það vill nú svo til að við erum með útgerð líka, þannig að það kemur þá niður á henni ef við lækkum hráefnisverðið. Stærsti einstaki kostnaðarliður í útgerðinni er launakostnað- ur, allt að 40% af tekjum, þannig að það hefur veru- leg áhrif fyrir heildina að lækka verðið. Það er í raun það ráð sem menn grípa til, að lækka hráefnisverðið og svo verða menn að vera meira vakandi varðandi annan kostnað. Menn geta velt fyrir sér sparnaði, frestun á einhverjum framkvæmdum og unnið að lækkun rekstrarkostnaðar almennt." Engar viðræður við HB og ÚA um sameiningarmál Sameining og samruni fyrirtœkja er eitt af því sem mikið er talað um og gert af í dag. Á haustmánuðum gekk sú saga fjöllunum bxrra að Síldarvinnslan hf. vœri að sameinast öðrum fyrirtcekjum og heyrðust þá nöfn ÚAog Haraldar Böðvarssotiar, svo dxrni sé tekið. Sú umrxða kom í kjölfar kaupa Burðaráss á hlutabréfum íþessum félögum. Er Síld- arvinttslan á leiðinni í samstarf við annað eða ötmur fyr- irtxki í sjávarútvegi? „Eg get staðfest að það hafa ekki verið viðræður á milli þessara félaga um sameiningu, alla vega ekki með þátttöku Síldarvinnslunnar. Eg veit ekki hvort UA og HB eru að tala saman. Það er nú þannig að menn talast við í sjávarútvegi og velta fyrir sér hug- myndum sem gætu verið fysilegar. Slíkt er bara hluti af daglegu starfi, en það hefur ekkert verið sérstakt á teikniborðinu hjá Síldarvinnslunni um sameiningu þó rætt hafi verið við ýmsa aðila.“ Eru það kannski „verðbréfastrákarnir,, sent kotna þessum orðrótni af stað? „Þetta er kannski leikur sem maður hefur oft séð hjá þeim aðilum sem vinna hjá verðbréfafyrirtækjun- um. Verðbréfamarkaðurinn hér á landi er ekki gam- all og þeir sem vinna á þessum markaði eru aðallega ungir og ákafir menn. Oft á tíðum held ég að þeir séu sjálfir búnir að setja eitthvað upp á teikniborðið og leika sér að því að koma einhverjum orðrómi af stað sín á milli. Eg held að það hafi gerst í þessu tilfelli, ef til vill vegna kaupa Burðaráss á hlutabréfum í þess- um félögum. Þetta er alltaf ákveðin hætta í svona litlu þjóðfélagi, einhverju er hent á loft og sagan fær byr undir báða vængi og það er jafnvel búið að sam- eina fyrirtæki án þess að forsvarsmenn þeirra hafi tal- að saman.“ Hugur fylgdi ekki máli hjá Skagstrendingi Urðu það tnikil vonbrigði þegar Skagstrendingur dró sig itt úr sameiningarviðrxðunum við Síldarvinnsluna á síðasta ári? „Já, það urðu gríðarlega mikil vonbrigði. Eg held að menn hafi verið mjög bjartsýnir á að það mál myndi ganga eftir og að það næðust samningar um sameiningu. Aðilar hérna megin unnu heilshugar að því og töldu það sama gilda hinum megin borðsins. Eftirá að hyggja held ég að það hafi aldrei verið inni x myndinni af hálfu Skagstrendingsmanna að koma að þessu borði. Eg met stöðuna svo í dag. Það var búið að leggja mikla vinnu í þetta mál, bæði af Finn- boga og síðar af mér og stjórnarmönnum Síldar- vinnslunnar hf. Sama gildir um ákveðna aðila af Skagstrendings hálfu, þannig að vonbrigðin urðu vissulega mjög mikil." Staður eins og Neskaupstaður verður einfaldlega að sanna sig sjálfur Er fýsilegt fyrir fyrirtxki eins og Síldarvinnsluna hf að sameinast öðrum fyrirtxkjum, t.d. á stxrri stöðum eins og Akureyri eða á Stór-Reykjavíkursvxðinu? „Eg sé því ekkert til fyrirstöðu að fyrirtæki samein- ist, þó þau séu á sitt hvoru landshorninu, í þéttbýli Nótaskipið Börkur NK kemur lestað að tandi í Neskaupstað, Skip SVN hafa verið fengsæl og afli þeirra tagt grunninn aó þvi veldi sem Sítdarvinnslan er. Viðtal og Ijósmyndir: Elma Guömundsdóttir, Neskaupstaö 23

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.