Ægir - 01.10.2000, Side 17
HEIMSÓKN Á VOPNAFJÖRÐ
Fjölveiöiskipið Sunnuberg, sem Tangi hf. gerir út.
Það sem eftirrektarvert er við
landvinnsluna hjá fyrirtækinu er
að fyrir rösku ári var gerð breyt-
ing á vinnutilhöguninni í frysti-
húsinu sem þýðir að þorri fisk-
vinnslufólksins hefur lokið sinni
dagvinnu kl. 13 á daginn en
vinnudagurinn hefst kl. 7. Friðrik
Mar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri, segir hafa verið
nauðsynlegt að ná aukinni hag-
ræðingu í vinnsluna og vinnu-
tímabreyting hafi verið einn besti
kosturinn í stöðunni. „Breytingin
mætti vissulega andstöðu en í dag
held ég að enginn vilji skipta til
fyrra horfs," segir Friðrik.
Samdráttur á lýsis- og mjöl-
mörkuðum hefur gert þeim fyrir-
tækjum erfitt fyrir sem byggja
sína afkomu að verulegu leyti á
uppsjávarveiðum og -vinnslu.
Þegar svo við bættist þrenging á
mörkuðum fyrir frysta loðnu, sér í
lagi í Rússlandi, var girt fyrir einn
af möguleikum þessara fyrirtækja
til að bæta sér upp sveifluna í
mjöli og lýsi.
„Sú óvenjulega staða hefur nú
verið um nokkurn tíma á mörk-
uðunum að verð hefur verið lágt á
sama tíma á mjöli og lýsi. Mjölið
hefur reyndar örlítið rétt úr kútn-
um en lýsisverðið hefur aðeins
einu sinni verið jafn lágt og það er
nú og þarf að hækka um 60% til
að ná meðalverði ef litið er yfir 10
ára tímabil á lýsismörkuðunum.
Þetta ástand kemur að sjálfsögðu
við rekstur hjá fyrirtækjum eins
og okkar sem eiga mikið undir
þessum mörkuðum og gerir að
verkum að verð fyrir afurðirnar
eru núna aðeins um 60% af því
sem gerist í venjulegu ári.“
- Eru einhverjir spádómar uppi
um á hve löngum tíma þessir
markaðir rétta við?
„Nei, það getur enginn spáð
fyrir um það. Að vísu er talið að
fýrir 2010 verði orðinn svo mikill
vöxtur í laxeldi að nota þurfi allt
það lýsi sem framleitt er í heimin-
um í dag. En hvenær vaxandi eft-
irspurn mun skila betra lýsisverði,
treysti ég mér ekki til að segja,"
segir Friðrik.
Loðnan er ekki fæða
hins fátæka Rússa
Hátt olíuverð um þessar mundir
leggst ofan á margt annað í erfiðu
markaðsumhverfi þeirra sjávarút-
vegsfyrirtækja sem byggja af-
komu á sölu uppsjávarfiskafurða.
Á árunum 1996-1998 fjárfestu
mörg uppsjávarfyrirtækin ís-
lensku í tækjabúnaði til frysting-
ar á loðnu og öðrum uppsjávar-
fiski og meðal þeirra var Tangi hf.
Fyrirtækin voru með þessu að
treysta sína stöðu gagnvart mörk-
uðum fyrir frysta loðnu í Japan og
Rússlandi en greitt var mjög hátt
verð fyrir afurðina í Japan en segja
má að það hafi fremur verið stærð
markaðarins í Rússlandi sem horft
var til fremur en hátt verð.
„Við frystum hér x nýja upp-
sjávarfrystihúsinu um 10 þúsund
tonn árið 1997 og 5400 tonn árið
1998, eða þar til rúblan féll
þrefalt gagnvart bandaríkjadollar.
Afleiðing af þessu verðfalli
rúblunnar var einfaldlega mun
lakari afkoma af frystingu fyrir
Rússland og það má segja að það
Rússneskt flutninga-
skip fer frá Vopna-
firði með um 800
tonn af afurðum frá
Tanga hf.
Bolfiskvinnsla Tanga
hf. byggist upp á
Rússafiski, sem
þýddur er upp og
unninn i öskjur á
hefðbundinn hátt.
17