Ægir - 01.10.2000, Side 30
FJARSKIPTI & SJÁVARÚTVEGUR
skeið hjá okkur með Standard-C fjar-
skiptakerfmu en tölvupóstnotkun með
EMSAT býður upp á meiri möguleika,
t.d. að senda íylgiskjöl og sama er að
segja um svokallað Inmarsat mini-M,
sem við höfum einnig að bjóða.
Fyrir þá sem leggja vilja meiri fjármuni
í fjarskiptamöguleikana er í boði svokall-
að Inmarsat-B, sem er allt frá 9,6 kbps til
64 kbps gagnaflutningur en þá erum við
líka að tala um mun dýrari vélbúnað fyrir
hvert skip og mun meiri kostnað á mín-
útu í notkun en ef um EMSAT er að
ræða. Búnaður fyrir fjarskipti um
EMSAT kostar aðeins um 300 þúsund
krónur þannig að ólíku er saman að jafna.
Sú lausn býður bæði talsamband, gagna-
flutning, faxsendingar og SMS-smáskila-
boðasendingar og að mínu mati getur
þessi lausn uppfyllt þarfir hjá stórum
hluta flotans," segir Jóhann en athygli-
vert er að EMSAT búnaðurinn hefur
einnig þann möguleika að senda á sjálf-
virkan hátt inn staðsetningarskilaboð til
tilkynningarskyldunnar á hagkvæmari
hátt en áður hefur þekkst.
Lausnir í samstarfi
við islenska hugbúnaðarfram-
leiðendur
„Við getum sagt á einfaldan hátt að til
fjarskipta skipa er í dag að finna allt frá
talstöðvum upp í gervihnattalausnir með
allt að 2000 kbps flutningsgetu. I stærstu
kerfunum bjóðum við svokallaða VSAT
lausn og erum þá komin út í svo öfluga
tengingu að hægt er að flytja lifandi
myndir á milli lands og skipa. Slíkar
lausnir þurfa væntanlega ekki margir á að
halda en þær eru engu að síður til, ef á
þarf að halda.
Til að nýta alla þessa fjarskiptamögu-
leika eru síðan að þróast áhugaverðir
þjónustumöguleikar við skipin og þar
hafa íslensk fyrirtæki ekki látið sitt eftir
liggja. Við erum til að mynda að selja
hugbúnað frá íslenska fyrirtækinu Net-
verki sem hannað hefur hugbúnað til að
þjappa skjölum fyrir sendingar í gegnum
gervihnattabúnað, ásamt því að geta valið
hagkvæmustu flutningsleið hverju sinni.
Einnig munum við hjá Radíómiðun
koma fram á næstu mánuðum með
splunkunýtt kerfi í samstarfi við Snerpu á
Isafirði þar sem heilu áhafnirnar geta
haldið utan um póstsamskipti, t.d. í
tölvu í matsal, og fær þá hver og einn
skipverji sitt netfang. Við gerum okkur
grein fyrir að sjómenn sjá möguleikana í
tölvupósti í samskiptum við sínar fjöl-
skyldur og viljum því vera áfram 'í farar-
broddi í þjónustu við þá hvað þetta varð-
ar,“ segir Jóhann.
Þjónustubankinn i sókn
Enn eitt dæmið um þá möguleika sem
gagnaflutningar hafa opnað er Þjónustu-
banki Radíómiðunar, sem rekinn hefur
verið um skeið. Notendur bankans geta
sótt sér á hverjum degi fjölbreyttar upp-
lýsingar í gagnabanka Radfómiðunar,
t.d. veðurspár, fréttir, upplýsingar um
sjólag, úrslit íþróttakappleikja, efni úr
fjölmiðlum og þannig má áfram telja.
Þetta er sértæk upplýsingaveita sem
tekur mið af þeim fjarskiptabúnaði sem
nú er til staðar til gagnaflutnings, eins og
t.d. NMT, mini-M og EMSAT. „Áskrif-
endum að Þjónustubankanum er stöðugt
að fjölga og við getum af því merkt að
sjómenn kunna vel að nýta sér þá fram-
þróun sem sífellt er að verða í tölvusam-
skiptum. Hún er ekki síður mikilvæg á
sjó en í landi,“ segir Jóhann Bjarnason,
framkvæmdastjóri Radíómiðunar ehf.
Langbylgjuþjónusta Ríkisútvarpsins:
Aukin þjónusta þakklát meðal sjómanna
„Á undanförnum árum höfum við endurbætt
langbylgjusenda Ríkisútvarpsins og nú eiga
sjófarendur hér vió landió aó geta náó Lang-
bylgjuútsendingu meó dagskrá sem er blanda
af efni Rásar 1 og Rásar 2," segir Eyjólfur
Valdimarsson hjá Rikisútvarpinu, en útvarps-
þjónusta er mikilvægur afþreyingar- og öryggisþáttur sjó-
manna.
Eyjólfur segir að langbylgjusendarnir eigi að þjónusta öll
helstu mió í kringum Landið, sem og sjáLfsögóu Landió sjálft.
„Inn á LangbyLgjuna stýrum vió efni af Rás
1 og Rás 2 og það er i sjálfu sér dagskrár-
ákvöróun hvaða dagskrárLiði er boóið upp
á. Fyrr á árum var aðeins i boói á Lang-
bylgjunni dagskrá Rásar 1 en vió finnum
fyrir því að sjómenn eru þakkLátir fyri
meiri fjöLbreytni í dagskrárvalinu. Ég held að þaó eigi ekki
hvað síst vió um yngri kynslóðina á sjónum og þá eru íþrótta-
Lýsingar ekki hvað síst vinsæLar," segir Eyjólfur VaLdimarsson.