Ægir - 01.10.2000, Side 35
IPTI & SJÁVARÚTVEGUR
Inmarsat
Birgir Aðalsteinsson, tæknimaóur hjá Hattækni.
ar fjarskiptalausnir sem byggjast á kerf-
inu.
„Inmarsat má skipta í þrennt, þ.e. In-
marsat A, Inmarsat C og Inmarsat mini-
M. Inmarsat A notar stóran og nokkuð
dýran búnað og um hann má senda telex,
gögn og símtöl. Inmarsat C má nota til
sendinga á telex. Gervihnettir sem kerf-
ið notar eru yfir Kyrrahafi, Atlantshafi (2)
og Indlandshafi og ná þeir milli 70 gr. N
°g 70 gr.S. Mini M er ódýrari kostur en
Inmarsat A og þar eru tækin minni. Um
mini M má senda telex, samtöl og gögn.
Helsti ókostur er að það eru dauðir blett-
ir I útbreiðslu á miðjum úthöfunum,"
segir Birgir og leggur áherslu á að sú
breyting hafi helst orðið varðandi gervi-
hnattafjarskipti á síðustu misserum að
kostnaður sé á niðurleið og af því leiði
hraðari þróun en ella.
Gervihnattasímar eruframtíðin
„Við hjá Haftækni höfum sérstaklega
lagt áherslu á að bjóða útgerðum lausnir
sem byggjast á Inmarsat mini-M. Þar er
um að ræða gervihnattasíma og amerísk
loftnet af gerðinni KVH og eru þau mjög
fyrirferðarlítil og ódýr, sérstaklega ef haft
er í huga hvaða möguleika þau bjóða.
Með þessum búnaði geta skip nýtt sér
alla möguleika til nútímafjarskipta,
hvort heldur um er að ræða samtöl eða
sendingu og móttöku tölvugagna," segir
Birgir.
Fjarskiptin verða sífellt
einfaldarí
- segir Birgir Aðalsteinsson, tæknimaður hjá Haftækni
„Það hefur að undanförnu verið mikið
um verkefni í skipum sem tengjast
GMDSS fjarskipta- og öryggisbúnaðin-
um, enda eru Islendingar aðilar að alþjóð-
legri samvinnu um þetta kerfi og eru
skuldbundnir til að koma kerfinu á í flot-
anum. GMDSS búnaður á að vera kominn
í öll stærri skip en nokkrir eru enn eftir
og því talsvert um uppsetningar á búnað-
inum,“ segir Birgir Aðalsteinsson, tækni-
maður hjá Haftækni hf. á Akureyri.
Birgir segir engan vafa leika á að
GMDSS kerfið sé mikilsvert öryggiskerfi
um borð í skipunum, jafnframt því að
þjóna fjarskiptahlutverkinu. Með kerfinu
sé á sjálfvirkan hátt eftirlit með skipum á
hafi úti og sendi skip út neyðarkall á kerf-
inu þá sé tryggt að skilaboð berist bæði
nærliggjandi skipum, strandstöðvum og
tilkynningarskyldu í landi í gegnum
gervihnetti.
Inmarsat-kerfið með
langa reynslu
Gervihnettir eru einmitt lykilorð í fjar-
skiptum í dag og sá hlekkur sem flestar
nýjar lausnir í fjarskiptum skipa byggjast
á. Ekki svo að skilja að gervihnettir hafi
ekki verið til um árabil - þvert á móti.
Um langa tíð hafa verið þekkt gervi-
hnattakerf i og þekktast er líkast svokall-
að Inmarsat-kerfi. Á síðari árum hafa
fleiri komið til sögunnar, svo sem
Globalstar og Iridium-kerfið, en hið síð-
arnefnda er um það bil að leggjast af.
Birgir þekkir vel til Inmarsat-kerfisins,
enda hefur Haftækni um árabil selt ýms-
Að sögn Birgis er Inmarsat mini-M í
öllum tilvikum nægjanlegt á Islandsmið-
um. Birgir segir ljóst að gervihnattasím-
ar séu sú grunntækni í fjarskiptum sem
taki við af NMT-farsímakerfinu, sem vel
er þekkt í flotanum og byggist á lands-
stöðvum.
„Það er auðvitað langt í að menn mali
tímunum saman í gervihnattasímum því
notkun þeirra er dýr. Hins vegar opnast
með gervihnöttunum auknir möguleikar
á notkun tölvupósts og það er líka svo að
þær fjarskiptastöðvar sem sjá um að taka
við sendingum um gervihnött eru sífellt
að bjóða meiri afslætti og keppa harðar
sín á milli. Slíkt kemur notendum að
sjálfsögðu til góða,“ segir Birgir Aðal-
steinsson hjá Haftækni hf.