Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2000, Síða 36

Ægir - 01.10.2000, Síða 36
EVRÓPUSAMBANDIÐ & SJÁVARÚTVEGURINN Fyrri grein Úlfar Hauksson skrifar. Hann er stjórnmála- fræðingur og hefur nýlokið við M.A-ritgerð frá Katholieke Universiteit Leuven í Belgíu sem fjallar um sjávarútvegs- stefnu ESB og hugsanlega stöðu íslands. Fiskibátur i bænum Oostande i Belgiu. Evrópusambandsaðild - gæfuspor fyrir sjá va r útvegsstó r- veldið ísland Fullyrða má að íslendingar hafi stigið gæfuspor með aðildinni að EFTA árið 1970 og EES árið 1994. Þessi tvö mikilvægu skref hafa leitt til auk- ins frjálsræðis og nútímalegri stjórnarhátta í íslensku samfélagi og eru mjög fáir annarrar skoðunar. Þrátt fyrir þessar staðreyndir er ljóst að hér voru einungis stigin mikilvæg skref í „áfanga á Evr- ópuför". Nú eru liðin tæplega sjö ár frá því að EES-samningurinn gekk í gildi og á þeim tíma hafa þrjú ríki; Austurríki, Finnland og Svíþjóð, yfirgefið EFTA/EES stoðina og gengið að fullu til liðs við Evrópusambandið. EFTA/EES stoðin er því mun veikari en hún var í upphafi. Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, hefur gefið skýrt til kynna að norsk stjórnvöld stefna á fulla aðild árið 2005. Gangi það eftir mun EFTA/EES stoðin bíða frekari hnekki með einungis Island og Liechtenstein innanborðs. Þegar hugsanlega aðild Islands að Evrópusambandinu ber á góma heyrast ávallt úrtöluraddir sem telja slíkt ekki koma til greina. Urtölumenn telja sig vera að verja fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar sem og framtíðarhagsmuni ís- lensks sjávarútvegs. Slíkar úr- töluraddir voru einnig háværar þegar umræðan um aðild Islands að EFTA og EES stóð sem hæst. Til heilla fyrir íslendinga urðu raddir framfarasinna ofan á. Is- lendingar brutu niður múra kyrr- stöðusamfélagsins, tóku skref fram á við og ákváðu að vinna að hagsmunum sínum innan vé- banda EFTA og EES. Úrtölu- menn sögðu að Islendingar yrðu ekki lengur sjálfstæð og fullvalda þjóð og að íslenskur sjávarútvegur byði hnekki af þátttökunni í þessu samstarfi. Sagan hefúr því farið óblíðum höndum um hræðsluáróður þeirra.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.