Ægir - 01.10.2000, Side 42
Nýmáluó mjúk botnmálning
Nýmáluð hörð botnmálning
o Eiturhluti |
Bindiefni
Sjór
að fylla í þessar holur með máln-
ingu eða slípa málninguna niður.
* Sílikon botnmálning sem
inniheldur ekkert eitur og slíþast
ekki, en hefur sérstaklega hált yf-
irborð, þannig að fátt nær að fest-
ast á botninn. Þetta er tiltölulega
ný og dýr tækni og bara notuð á
hraðskreiðari báta.
Tinbotnmálning og
reglugerðarbreytingar
Tinmálning innheldur TríBút-
ýlTin (TBT) eiturblöndu og hefur
hingað til gefið bestan árangur á
skipsbotna. Því miður virðist
TBT hafa skaðvænleg áhrif á við-
kvæmt vistkerfi sjávar. Langur
niðurbrotstími TBT býður m.a.
þeirri hættu heim, að efnið fari
inn í fæðukeðjuna og endi síðan á
disk þess sem situr á enda hennar.
I mörgum löndum og þar á
meðal á Islandi hefur undanfarin
áratug verið bannað að nota TBT
botnmálningu á skipum undir 25
m lengd. Frá því að þessar reglur
voru settar hefur Slippfélagið að-
eins boðið upp á tinlausa botn-
málningu á allar gerðir skipa. Nú
hafa verið settar alþjóðlegar reglur
sem banna notkun TBT botn-
málningar frá árinu 2003 og að
það þurfi að vera búið að fjarlægja
algjörlega slík efni af botnum
skipa fyrir árið 2008.
Tinlaus botnmálning
Til að leysa af hólmi sjálfslípandi
TBT botnmálningarefni hefur því
þurft að leita nýrra leiða og/eða
umhverfisvænni eiturgerða. Sú
leit hefur verið erfið, þar sem TBT
botnmálningarefni hafa haft eig-
inleika sem erfitt hefur verið að ná
í tinlausri botnmálningu. Þar
mætti nefna eiturvirkni, slípun,
sveigjanleika, höggþol og viðloð-
un. Hempel hefur nú komið fram
með lausn á þessu sem hægt er að
bera saman við bestu tinbotn-
málningarefni.
Hempels Globic SP-ECO
Hempels botnmálning Globic
SP-ECO (8190) (Self Polishing-
Environmental Compsite Option)
er þurrefnisrík, tinlaus og sjálf-
slípandi botnmálning. Það hefur
tekið rúm 5 ár að þróa þessa máln-
ingu og hefur hún verið prófuð í
nánast öllum heimshornum, þar á
meðal á Islandi, með frábærum ár-
angri. Málningin heldur stöðugri
og jafnri virkni út líftíma sinn.
Botnmálningin hentar vel á skip
með breytilegan siglingarhraða,
s.s. togskip af flestum stærðum og
gerðum.
Eiginleikar botnmálningarinn-
ar byggjast á nýrri gerð af mjög
virku umhverfisvænu eitri, bindi-
efni sem myndar afar slétt sjálf-
slípandi yfirborð og trefjum sem
tryggja rétta slípun og auka til
mikilla muna höggþol.
Eitrið SEA-NINE
í Hempels málninguna er notuð
efnablanda (SEA-NINE) sem er
afar eitruð fyrir ýmis krabbadýr,
þörunga og botngróður og annað
sem festist á botn skipa. Lítinn
styrk af efninu þarf til að drepa
þessar lífverur. Vegna þess hversu
virkt þetta efni er þá brotnar það
mjög hratt niður í umhverfinu og
myndar engin hættuleg niður-
brotsefni. Eitrið safnast ekki sam-
an í lífverum, eins og hætta var
með tineitrið. SEA-NINE hefur
hlotið viðurkenningu frá „US En-
vironmental Protection
Agency’s".
Trefjar
Eitt af erfiðustu vandamálum við
þróun á tinlausri botnmálingu er
að tryggja styrk og höggþol
málningarinnar. Mörg bindiefni,
sem hafa verið prófuð í botnmáln-
ingu, hafa haft frábæra slípieigin-
leika. Þau hafa þó verið ónothæf
sökum þess hversu viðkvæm
málningin hefur verið fyrir lítils-
háttar hnjaski og höggum. Onnur
bindiefni eru of sterk og slípast