Ægir - 01.10.2000, Qupperneq 48
SKIPASTÓLLINN
rafgeymakerfi. Vélar eru ræstar með raf-
ræsi. Hver vél hefur sitt eigið 24 V DC
rafkerfi með tilheyrandi rafgeymum.
Við aflúttök á gír eru tvær háþrýstar
vökvadælur, önnur fyrir línuspilið en hin
fyrir línuuppstokkara.
Stýrisvélin er vökvadrifin frá Scan Ster-
ing. Fyrir stýrisvél eru tvö sjálfstæð
vökvakerfi. Stýrisblaðið, svokallað
prófílstýriblað og stýrisstammi voru
smíðuð hjá skipasmíðastöðinni.
Kælikerfi lestar er knúið af rafknúinni
Carrier kælipressu . Fyrir vélarúm er C02
slökkvikerfi frá Eldverk.
Helstu tæki í brú o.fl.
Öll siglinga-, fiskileitar- og fjarskipta-
tæki koma frá Radíómiðun ehf. sem
einnig sá um hönnun og uppsetningu
allra tækja í tækjapúlti. Um er að ræða
tvær ratsjár; frá Litton er BridgeMaster
251/4E með ARPA , 20“ skjá og teng-
ingu við Gyro vegmælir og GPS, Koden
ratsjá af gerðinni MD 3641.
Frá Koden eru tveir dýptarmælar af
gerðunum CVS 8841P og CVS 8826T.
Frá sama fyrirtæki eru hita- og hraðanemi
af gerðinni CVSlll í sérstöku botns-
tykki. Tvö Koden GPS tæki eru í skipinu
af gerðunum KGP913D og KGP912D
með innbyggðri leiðréttingu. Gíro átta-
vitinn er frá Litton af gerðinni SR 180 og
sjálfstýringin er Robertson AP 45. Um
borð er fullkomin PC/Windows siglinga-
tölva frá MaxSea. Fjarskiptatæki eru frá
Sailor. Um er að ræða VHF, stuttbylgju-
stöð og handstöðvar.
Aðalmál_________________________
Mesta lengd (m) 28,90
Lengd milli Lóðlina (m) 25,00
Skráð Lengd (m) 26,50
Breidd (m) 7,50
Dýpt að aðaLþiLfari (m) 3,3
Dýpt að efraþiLfari (m) 5,55
Mæling__________________________
Brúttó rúmLestir (BrL) 115,73
Brúttó tonn (B.tonn) 251,0
Nettó tonn (N.tonn) 75,0
Rými og stærðir_________________
BrennsLuoLíugeymar (m3) 30
AndveLtitankur (m3) 12
Ferskvatnsgeymar (tonn) 8
Lestarrými----------------------
fjöLdi kara 660L 86
Eigin þyngd (tonn) 220
Særými (tonn)* 288,8
Hönnunar djúprista (m) 2,7
-Aðrar-uppLýsingar---------------
Reiknuð bryggju-
spyrna (tonn) 6,2
Aflvisir 623,4
Hraði í reynsluferð (hnútar) 11,1
Smíðaár 2000
Frumskráð 11.08.2000
Skipaskrárnúmer 2446
* Hönnunardjúprista 2,60 metrar
Að auki eru x brú sjálfvirkur búnaður
fyrir tilkynningaskyldu og neyðarhjálp
frá STK RaCal, Phontec kallkerfi og tveir
Dancal NMT símar.
Fiskifélagið þakkar ölLum sem aðstoð-
uðu og veittu upplýsingar við gerð grein-
arinnar, sérstaklega Magnúsi G. Magnús-
syni hjá Skipasýn.
Nortek flytur
Þjónustufyrirtækið Nortek ehf. flutti á dögunum starfsemi
sína frá Bíldshöfða 18 í Reykjavík að Eirhöfða 13, þar í
borg. Fyrirtækið annast sölu- og þjónustu vegna öryggis og
eftirlitskerfa, m.a. fyrir sjávarútveginn og segir Björgvin
Tómasson, framkvæmdastjóri, að með nýju húsnæði verði
öll vinnuaðstaða rýmri, svo og aðstaða fyrir lagerhald,
samsetningu og sýningu eftirlitskerfa.
Hjá Nortek starfa 8 manns en fyrirtækið er með
starfsstöðvar í Reykjavík og á Akureyri.