Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1920, Side 54

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1920, Side 54
52 að meslu fram undir aldamólin siðustu, en telja má, að hann væri hingað alkominn aldamótaárið. Ivvæntist hann nokkru siðar (1904) Ingileifu Snæbjarnardóttur Þorvaldssonar, og lifir hún hann ásamt 4 börnum þeirra. Vann hann fyrir sjer með ýmsu íyrst um sinn. Árin 1906—1911 starfaði hann við Landsbókasafnið, og var umgengni hans þar allri og lipurð við notendur safnsins við hrugðið. 1911 var Háskóli íslands stofnaður, og var hann skipaður dócent í íslandssögu. Gegndi hann þvi starfi upp frá þvi til dauðadags. Árið 1919 var emhætti hans gert að prófessorsembætti. Sama ár sæmdi háskólinn hann doktorsnafnhót »honoris causa«. Rektor há- skólans var liann valinn 17. júni 1920. Segja mátti, að hann hefði oft á undanfarinni ævi ált töluvert erfitt uppdráttar og ekki verið farið með hann að verðleikum, en nú sýndist alt ætla að fara að komast í fegurra liorf fyrir honum. En þá var ævi hans lokið. Hann var staddur ulan lands í þeim tilgangi að sækja norrænan sagnfræðingafund i Kristjaniu er hann varð bráðkvaddur, 5. júlí þ. á. Ritstörf Jóns voru mjög mikil, þegar litið er á það, að hans naut eigi lengi við. Getum vjer sjeð speglast i þeim hinar tvær stefnur, er náðu lökum á huga hans i Dan- mörku, önnur frá rikisskjalasafninu, þar sem hann sat og gróf upp fólginn fróðleik, en hin frá Vallekilde, þar sem hann kyntist alþýðufræðslu lýðháskólanna. Er hjer ekki rúm til þess að fara mörgum orðum um rit lians, heldur skulu hjer aðeins nefnd nokkur hin helstu, en að öðru leyti leyfi jeg mjer að vísa á ný útkomna ritgerð »Jón Jónsson Aðils« í Skirni (1920 bls. 225—248) eftir dr. phil. Pál E. ólason. Fyrst kom ritgerð eftir liann í Historisk Tidskrift 1893: »Fæstehondens Kaar paa Island i det 18. Aarhundrede«. Þá má nefna ritgerð allnnkla: »Skúli landfógeti Magnús- son og ísland um hans daga« í Safni til sögu íslands III. bindi bls. 1 — 191. Sýnir þessi ritgerð mikla þekkingu á sögu 18. aldarinnar og ágæta sagnritara hæfileika, en efnið var honum þó að nokkru leyli ofviða. Síðar jók hann þessa rit-

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.