Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1931, Blaðsíða 57
57
kirkjunnar. Þeir taka náttúrlega þetta mál, eins og önnur,
miklu fastari tökum en gert liafði verið áður. Auk þess tekur
nú að birta stórum yfir öllu, að því er heimildir snertir.
Ireneus.
Á nokkurskonar tímamótum í þessu efni stendur einn hinn
fyrsti þeirra leiðtoga, sem nú komu fram, Ireneus, biskup í
Lijon. Hann er að ýmsu leyti einbver liezti leiðsögumaður
um sína samtíð, því að bann var kunnugur víða og bafði
beinar sagnir frá fyrstu tímum kristninnar.
íreneus var ættaður úr Litlu-Asíu og ólst þar upp, senni-
lega í Smyrna. Hann er að vísu sagnafár um æsku sina, en
þetta virðist mega ráða af því, sem liann segir í öðru sam-
bandi. Sennilega er bann fæddur einhverntíma á árunum
135—140.
Hann minnist þess, er hann sá í æsku öldunginn Polykar-
pus, biskup þar í borginni. En það er algerð missögn, að
íreneus segi nokkurt orð um það, að bann bafi verið læri-
sveinn Polvkarpusar. Hann minnist iians aðeins líkt og síra
Jón Halldórsson i Hítardal minnist þess, er liann sá öldung-
inn Brynjólf Sveinsson, bisknp, á alþingi, síðasta skifti sem
Brynjólfur kom þangað, en síra Jón var þá 9 vetra. í
Smyrna, kynntist hann og Flórinusi, er var nokkru eldri en
íreneus, og það er einmitt í sambandi við Flórinus þennan,
að íreneus minnist Polykarpusar, eins og af hending. Flórinns
lenti í villutrú í Bómaborg og meðal annars, sem Ireneus
gerði út af því, var það, að hann skrifaði honum bréf til
þess að reyna að leiða bann frá villu bans vegar. Minnir
liann Flórinus á það, að hann hafi meðal annars liitt hann
hjá hinum postullega Polykarpusi biskupi, sem mundi Jó-
hannes og aðra, sem þekkt höfðu drottin.
íreneus fluttist síðan til Gallíu og varð prestur í söfnuðin-
um í Lyon og síðan biskup safnaðarins og einhver atkvæða-
mesti maður vesturkirkjunnar. IJann var vel kunnugur í
Rómaborg. Var hann meðal annars sendur þangað á prests-
skaparárum sínum með bréf, þar sem skýrt er frá hinni
ógurlegu ofsókn, er þá gekk yfir borgirnar Lyon og Vienne,
Hér er því um mann að ræða, sem var gagnkunnugur öllu.
Hann ritaði mikið, en þekktast var verk það, sem liann rit-
aði gegn öllum villukenningum. Því miður er nú ekki nema
lítið eitt til af þvi á frummálinu (grísku), heldur aðeins í
latneskri þýðing. íreneus má vel kalla fyrsta kirkjuföðurinn.
8