Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1931, Page 69
69
Rétt eftir 200 geysaði ofsókn Septimusar Severusar. Var þá
faðir Órígenesar líflátinn. Börnin voru mörg og ung. Órígenes
var elztur og þó aðeins 18 ára. Var Órígenes Iiræddur um, að
faðir hans mvndi ef til vill láta undan, af tilliti til fjölskyld-
unnar, og skrifaði honum því eggjunarhréf í fangelsið. Flestir
leiðtogar forðuðu sér úr horginni og meðal þeirra Klemenz.
Tók þá Órígenes við skólanum, þótt ungur væri. Kenndi hann
á daginn en lærði sjálfur á nóttunni, og varð brátt einhver
lærðasti maður, sem uppi var. Dugnaður Iians var frábær.
Þrált fyrir sæg lærisveina vann liann geysimikið að vísinda-
störfum utan kennslunnar. En svo varð hann fyrir því happi,
að maður einn auðugur, sem hann hafði komið til réttrar trú-
ar, lét hann hafa sex hraðritara til aðstoðar og færði Órí-
genes sér það óspart í nyt. Auk þess unnu margir af nem-
öndum lians að ritstörfum með honuin. Gerðist Iiann þá ær;ð
stórvirkur.
Hér er ekki unnt að segja sögu Órigenesar. Hann starfaði
lengi i Alexandríu, en komst þá í missætti við biskupinn í
horginni, og fluttist til Sesareu. Hafði hann áður ferðast mik-
ið um og kynnst mörgu, enda fór nú orðrómurinn um hann
um öll lönd og jafnvel til lieiðinna rnanna. Það sem eftir var
æfinnar starfaði liann í Sesareu, og er það geysilegt verk,
sem eftir hann lá. Til dæmis um frægð Órígenesar er það,
að eitt sinn er móðir keisarans dvaldi um stund í Antíokkíu
í Sjnlandi, meðan sonur hennar var á herferð í Asíu, sendi
hún lífvarðarsveit eftir Órígenesi, til þess að geta haft tal af
honum um ýmis hugðarmál sín. Drottning þessi þótti afbragð
að gáfum og lærdómi, svo að hún réð mestu um stjórn ríkis-
ins. Eftir það sendust þau á bréfum.
í Decíusarofsókninni um miðja öldina var Órígenes tekinn
og reynt með öllum pyntingum og hótunum að fá hann til
þess að falla frá trúnni. En Órígenes bjóst nú við, að hann
myndi ætla að fá ósk sína uppfyllta, að deyja fyrir trúna, og
var óhagganlegur. Var hann loks látinn laus. En skömmu
seinna andaðist liann af misþyrmingum þessum, enda orðin
aldraður og lúinn, (251).
Ritverk Órigenesar voru afskaplega mikil. Er fádæma mik-
ið af þeim glatað og þó er svo mikið til, að fárra mann verk
eru meiri. Verður hér ekki vikið að öðru en skoðunum lians
á ritum Nýja-testamentisins.
Órigenes fékkst mjög mikið við biblíuskýringar alla æfi, og
til þess að fá sem fastastan grundvöll lærði liann hebresku.