Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1931, Side 106
106
þessara vafarita, að vesturkirkjan var gætnari og íhaldssam-
ari, en egipska kirkjan frjálslyndust.
Klemenzarbréfin.
Fyrra Klemenzarbréf er ritað um 96 e. Kr. til safnaðarins
i Korintu og naut bréf þetta víða mikils álits, þó að í raun-
inni væri ekki tilraunir gerðar til þess að koma þvi í ritsafnið.
Það var öllum augljóst, að það var ekki af postullegum upp-
runa, eins og t. d. liægt var að segja um Barnabasarbréfið.
Þvi mátti fremur likja við Po 1 ykarpusarbréf eða Ignatiusar-
bréfin. Þó var það á takmörkum ritsafnsins um hríð, eins og
sjá má af því t. d., að það er í Alexandriuhandritinu og fleiri
bandritum. Alexandriu-Klemenz vitnar og til þess og fer með
það eins og lieilagt rit. Og þó að bréf, sem stílað er til ákveð-
ins safnaðar, væri ekki vel til þess fallið, að vera kallað al-
mennt bréf, þá lenti það samt í þeim flokki. — Órígenes og
Evsebíus vildu á hinn bóginn eklci viðurkenna það. Evsebíus
þekkir það samt og segir, að það sé ritað af Klemenz þeim er
var þriðji biskup í Róm. Á Vesturlöndum datt engum í liug
að telja það til helgra rita, en íreneus hefir mætur á þvi og
bendir á það, ásamt bréfi Polykarpusar til Filippí, sem dæmi
upp á það, hvernig bin postullega kenning geymdist.
I Alexandríuhandritinu og viðar er bréf þetta í sambandi
við annað rit, sem kallað befir verið 2. Klemenzarbréf, en virð-
ist livorki eiga skylt við Klemenz né vera bréf. Það er nokk-
urskonar prédikun, rituð um miðja 2. öld, en um uppruna
þess virðast vísindamenn annars vera í vafa. Halda sumir að
það sé til orðið i sambandi við bréfaskipti þeirra Dionýsiusar
biskups í Korintu og Sóters, biskups í Róm, og sennilega er
það til orðið í annari hvorri þeirri borg, en aðrir telja það
upprunnið í Egiptalandi. — Þó að það kæmist sumstaðar í
samband við Klemenzarbréf (sem þess vegna er kallað 1.
Klem.), er langt frá þvi, að það sé allsstaðar með því. Kle-
menzarbréf er alveg eins oft eitt sér.
Pálssögur.
Postulasögur, sem ekki komust í ritsafnið, komu margar
fram og voru mikið lesnar. En þekktasta ritið í þessum bóp
var postulasaga af Páli, sem til er í ófullkomnum þýðingum.
Rit þetta er fram komið í Litlu-Asíu, og er fullt af allskonar
ýkjum eins og títt er um þesskonar bækur. Einbver kunnasti
þátturinn í riti þessu er sagan af Páli og Teklu. Hefir verið