Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1931, Page 125
125
hann, sagði hann: Fastið með mér (frá) í dag í þrjá daga, og
það, sem hverjum einum verður opinberað, skulum vér segja
hver öðrum. Sömu nótt var Andrési, einum at postulunum,
15 opinberað, að Jóhannes skyldi með umsjá allra rita allt í
eigin nafni. Og þess vegna, þótt mismunandi sé sagt frá
upphafinu (eða mism. sjónarmið) í einstökum guðspjöllum,
þá það skiftir engu fyrir trú hinna trúuðu, því að í sama
20 megin-anda er skýrt í þeim öllum frá öllu, er snertir fæðing-
una, píninguna, upprisuna, samtal við lærisveina hans og
tvær tilkomur hans, hina fyrri í læging og lítilsvirðing, sem
25 var, hina aðra í konunglegu veldi og dýrð, sem verða mun.
Er það því nokkurt undur, þótt Jóhannes beri svo stað-
fastlega fram einstök atriði í bréfum sínum, og segi um
sjálfan sig: „Pað sem vér höfum séð með augum vorum og
30 heyrt með eyrunum og hendur vorar þreifuðu á, um þetta
höfum vér skrifað yður.1 2) Pví að með þessu lýsir hann sig
ekki aðeins sjónarvott og heyrnarvott, heldur einnig þann,
er hafi ritað um allar dásemdir drottins í röð.3)
35 En athafnir allra postulanna eru ritaðar í einni bók. Lúkas
dró það saman handa hinum ágæta Peófílusi.8) Pað gerðist,
hvað eina, í návist hans, eins og hann sýnir ljóslega með
því að sleppa píning Péturs, og ferð Páls, er hann fór frá
borginni4) til Spánar.
40 En bréf Páls skýra sjálf frá því, öllum er það vilja skilja,
hver þau eru, frá hvaða stað og af hvaða ástæðu þau voru
send. Fyrst af öllum Korintumönnum og bannaði þeim
flokkadrætti og villutrú, því næst Galatamönnum (og bann-
aði þeim) umskurn. En Rómverjum skrifaði hann langt mál
45 og lýsti fyrir þeim röð ritninganna, en að Kristur væri grund-
völlur (princip) þeirra. Um einstök þeirra er engin þörf
fyrir oss að ræða, því að sjálfur hinn blessaði postuli Páll,
fylgdi reglu fyrirrennara síns Jóhannesar og skrifar aðeins
50 með nafni til sjö safnaða, í þessari röð; Fyrsta til Korintu-
manna, annað til Efesusmanna, þriðja til Filippímanna,
fjórða til Kólossumanna, fimta til .Galata, sjötta til Pessa-
55 lonikumanna, sjöunda til Rómverja. Að vísu er til árétt-
ingar annað bréf til Koritumanna og Pessalonikumanna, en
1) Sbr. 1. Jóh. 1, 1.
2) Gæti þetta staðið í sambandi við vilnisburð Papíasar um orð Jóhannesar
öldungs um Markús, að Mark. hafi ekki skrifað viðburðina „í röð.“?
3) Sbr. Lúk. 1, 3; Post. 1, 1.
4) = Rómaborg.