Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1931, Page 169
169
bókarefnis, pergaments eóa bókfells. Hér verða því mikil
tímamót í handritasögu Nýja-testamentisins.
Bókfell er l)úið til úr mörgum tegundum skinna, en mest
þó úr sauðskinnum og geitskinnum. Þykja þau betri að því
lej'ti, að það er minni fita í þeim. Þá eru og notuð kálfskinn,
svinaskinn og antílópuskinn. Þau voru miklu sjaldgæfari, en
eiga að bafa verið scrstaklega góð. Sagt er t. d., að Sínaíhand-
ritið mikla sé gert úr antílópuskinnum. Mikill kostur var, að
skinnin væri þunn, því að einn helzti galli skinnhókanna er
einmitt þykkt skinnanna. Þess vegna voru oft notuð skinn
af ungviði til allra vönduðustu handrita, og er meira að
segja sagt, að dæmi liafi verið til þess, að handrit væri búin
til úr skinnum af ófæddum lömbum.
Skinnin voru þanin meðan þau voru ný og þvínæst strok-
in og fægð þar til þau voru orðin livít. Stundum var einnig
egg'jabvíta eða önnur efni notuð lil þess að gera yfirborðið
enn livítara og' sléttara áferðar. Siðar var svo farið að lita
pergamentið til þess að gera það skrautlegra. Voru þau þá
stundum gerð purpurarauð og ritað svo á þau með gull- eða
silfurbleki. Kvartar Hieronymus undan þessu óliófi, og seg-
ir, að þegar skrautldætt fólk sitji í glæsilegum höllum, með
þessi handrit úr gulli og' purpuralitu bókfelli, þá sé allt þetta
komið nokkuð langt frá hinum fátæka, líðandi frelsara. En
á liinn hóginn kemur og fram í þessu sú ást, sem ekkert vill
spara, fremur en konan með alabastursbuðkinn (Mark.
14,3nn).
Eitt dæmi um þá aukning, sem verður á handritum Biblí-
unnar um þessar mundir, höfum vér. Það er skipun Kon-
stantínusar keisara til Evsebíusar biskups í Sesareu, að láta
skrifa 50 bandrit af Biblíunni handa kirkjunum í Konstantín-
ópel, sem sífellt fór fjölgandi. Þetta mun hafa verið árið
331, og þess er sérstaklega getið í liinni keisaralegu tilskip-
un, að handrit þessi skuli vera gerð á bókfell. — Þá getur og
Híeronýmus þess, að um 350 hafi beinlínis verið gerð ráð-
stöfun til þess, að koma papyrushandritunum í safninu í Ses-
areu á bókfell, til þess að þau geymdist betur.
Bókin (codex).
Ein afleiðing þess, að nú er farið að nota bókfell, var sú,
að nú sigrar bókarformið algerlega rolluformið. Og einmitt
þetta, að bókfellið fór vel í bók, liefir vafalaust átt sinn
22