Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1931, Page 181
181
Með þessu er það sagt, að 8. kafli í Matt., svari til 2. kafla
í Mark., 7. kafla í Lúk. og 10 kafla í Jóh. Þetta var afbragðs
ráð til þess, að gera menn fróða og vel að sér í ritningunni,
og því engin furða, þótt menn vildi fá þetta inn i handritin.
Aðferðinni lýsir Evsebíus sjálfur í bréfi til Carpianusar, og
er það bréf jafnan fremst í liverju góðu handriti, næst á und-
an reglunum (kanones). Reglurnar eru oft settar í umgerðir,
sem eru mjög skraútlegar, ágætis viðfangsefni fyrir góða
listamenn og mikil prýði á vönduðu handriti.
Euthalíus.
Önnur rit Nýja-testamentisins bafa ekki þetta sama sam-
ræmi eins og guðspjöllin, og því þurfti ekki þessara aðgerða
þar við. En hentugt var þó að skipta þeim til glöggvunar.
Var þá oft skrá um kapítulana og efni þeirra ritað framan
við bvert rit, eins og nokkurskonar efnisyfirlit. En svo komu
formálar fyrir Pálsbréfum og Post., lýsing á ferðum Páls o.
fl. og varð þetta talsvert langt mál allt saman. Eru formálar
þessir fyrir Post. og Pálsbréfum eignaðir Euthalíusi nokkr-
um, biskupi í Sulka, sem enginn veit livar var. En sannað
hefir verið nýlega, að Iiann muni bafa verið uppi um miðja
4. öld, eða li. u. b. 100 árum fyrr, en áður var haldið. Þessar
atbugasemdir Eutbaliusar eru nú ekki í nema ákveðnum
flokk bandrita og' má því telja það með sérkennum bandrits,
ef þær eru þar.
Sjálfsagt eru þessar athugasemdir ekki allar eftir Eutbalius
þennan, beldur mun bann liafa safnað sumum þeirra eftir
ritum annara. Sumar befir bann svo samið, og enn aðrar má
búast við, að sé inn komnar siðar, þegar atbugasemdirnar
fóru að ganga handrit frá liandriti. I útgáfu Euthalíusar er
skrifað í stuttlínum eftir efni.