Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1931, Blaðsíða 189
189
Codex Vaticanus.
B eða 03, v.Sd. (5 1. — Þá komum vér að því handriti, sem
talið er gjörmerkilegast allra biblíuhandrita. Er það og talið
þeirra elzt, og vfirleitt elzta handrit á hókfelli, sem til er.
Handrit þetta dregur nafn sitt af þvi, að það er gevmt í
páfahöllinni í Róm, Vatikaninu, og liefir verið í bókasafni
páfa að minnsta kosti síðan 1481, því að í bókaskrá frá því ári
er talin „Biblia in tribus columnis ex memb.“, sem á vafa-
laust við þetta handrit. En í skrá frá 1475 er það ekki nefnt.
En þó að það sé húið að vera allan þennan tíma í safni í Norö-
urálfunni, liefir ekkert af liinum miklu biblíuhandritum kom-
ið vísindunum eins seint að lialdi, eins og það, vegna mein-
semi páfanna, að Jofa mönnum að rannsaka það. Erasmus
fékk að vísu nokkra leshætti úr þessu liandriti, þegar hann
var að gefa út Nýja-testamentið, en bréfið kom of seint, svo
að hann gat ekki notað þá. Allt, sem unnið var næstu aldir
úr þessu handriti, var óprentað og því gagnslaust. Napólcon
Bónaparte tók þetta liandrit eins og fleiri dýrgripi úr páfa-
höllinni og liafði með sér til Parísar, 1809, og var það þá um
stund opið til afnota vísindamönnum. Var það þá rannsak-
að talsvert af hinum ágæta vísindamanni L. Ilug, og lýsti
liann þvi þegar sem sinni skoðun, að hér væri um eittlivert
elzta og Iiezta liandrit að ræða. En ekki voru ráðstafanir
gerðar til þess að gefa það út, og var það svo flutt aftur til
Ílalíu. Var það nú vandlega geymt, og fengu vísindamenn
clcki einu sinni að sjá það nema álengdar. Mai kardínáli, sem
var ágætur fræðimaður, liafði fengið skipun um að annast
útgáfu þessa liandrits. En livernig sem á því stóð, þá varð
þessi útgáfa mesta ómynd, og var ekki prentuð fyrr en að Mai
látnum, 1857 og 1859. Arið 1866 fékk Tischendorf að rann-
saka handritið í 42 klukkutíma á nokkrum vikum, í því skyni,
að liann gæti horið saman vafastaði. Hefði hann sennilega
fengið lengri tíma, ef hann Iiefði ekki hrotið samning með
því, að afrita 20 hlaðsíður lieilar í stað þess að bera aðeins
saman einstaka staði á víð og dreif. En eftir þessar rannsókn-
ir gaf Tischendorf út Nýja-testamentið samkvæmt þeim, 1867,
og' var það mikil framför frá því sem áður var. — Nú er búið
að gefa þetta handrit vandlega út, og meðal annars i ljós-
myndaútgáfu 1889—90. Nýja-testamentið kom út i nýrri ljós-
myndaútgáfu 1904, miklu vandaðri.
Þetta nafnlogaða liandrit er ritað á mjög vandað JjókfelJ,
27 cm. á hvorn veg, en hefir upphaflega verið stærra. Hefir
&